Teikning sem lyftistöng fyrir minni og líðan

Dr. Unnur Óttarsdóttir, listmeðferðarfræðingur og rannsakandi, kennir á námskeiðinu
Dr. Unnur Óttarsdóttir, listmeðferðarfræðingur og rannsakandi, kennir á námskeiðinu

Listmeðferð hefur á undanförnum árum vakið aukna athygli sem áhrifarík aðferð til að bæta líðan og efla nám. Ein af frumkvöðlum á þessu sviði er Dr. Unnur Óttarsdóttir, listmeðferðarfræðingur og rannsakandi, sem hefur þróað og kennt listmeðferð í yfir þrjá áratugi.

Unnur hefur sérhæft sig í svokallaðri námslistmeðferð, þar sem listsköpun er notuð til að styðja við nám og tilfinningalega úrvinnslu. Rannsóknir hennar sýna að teikning getur aukið minni og bætt líðan, meðal annars hjá börnum og fullorðnum sem glíma við námsörðugleika og hafa orðið fyrir áföllum.

Í nýlegri rannsókn, sem Unnur kynnti á Alþjóðlegu listmeðferðarþingi í febrúar 2025, kom fram að þátttakendur sem teiknuðu innihald orða mundu þau að meðaltali fimm sinnum betur en orð sem þau skrifuðu þrem vikum áður.

Niðurstöður rannsóknirnar gefa einnig til kynna að fólk sem á auðvelt með að muna skrifuð orð, man enn betur eftir þeim til langs tíma ef það teiknar þau í stað þess að skrifa. Einstaklingar sem eiga erfitt með að muna orð geta munað þau allt að 45 sinnum betur ef þau teikna merkingu orðanna þremur vikum áður, í stað þess að skrifa orðin niður. Þessar niðurstöður undirstrika mikilvægi sjónrænnar tjáningar í námi og meðferð.

Nemendur í lotu i mai s.l

Unnur hefur kennt listmeðferð við Listaháskóla Íslands og Símenntun Háskólans á Akureyri, auk þess að halda námskeið víða erlendis. Næsta grunnnámskeið í listmeðferð hefst í haust, en nú þegar eru biðlistar fullir, sem sýnir vaxandi áhuga á þessari meðferðarleið.

„Listmeðferð býður upp á öruggt rými þar sem einstaklingar geta tjáð tilfinningar sínar og unnið úr reynslu sinni með listsköpun,“ segir Unnur. „Það er ánægjulegt að sjá hversu margir finna styrk og jafnvægi með þessari aðferð.“

Unnur veitir nánari upplýsingar um listmeðferðarnámið í Símenntun Háskólans á Akureyri auk þess að veita frekari innsýn í rannsóknir sínar og störf (unnur@unnurarttherapy.is og 8670277). Frekari upplýsingar um námskeiðið má finna á heimasíðu smha.is og á heimasíðu Unnar https://Dr. Unnur Óttarsdóttir, listmeðferðarfræðingur og rannsakandi

https://smha.is/listmedferd-sem-leid-til-sjalfstyrkingar/

Nýjast