Tónlistarskólinn á Akureyri fagnar 80 ára afmæli sínu
„Við erum afskaplega stolt af skólanum okkar og því góða starfi sem hér fer fram. Á laugardaginn bjóðum við öllum bæjarbúum að koma við og kynna sér starfið og njóta dagsins með okkur,“ segir Hjörleifur Örn Jónsson skólastjóri Tónlistarskólans á Akureyri. Um þessar mundir eru 80 ár frá því skólinn var formlega stofnaður, 20. janúar árið 1946 og hefur hann starfað samfleytt upp frá því. Starfsemin hefur vaxið og dafnað einkum síðustu tvo áratugina. Tónlistarskólann á Akureyri hefur verið til húsa í Menningarhúsinu Hofi frá árinu 2010.