Ferðafélag Akureyrar fagnar 90 ára afmæli
„Við erum stolt af þessu afmælisbarni sem ber aldurinn einkar vel og hefur eflst og styrktst með hverju árinu. Í gegnum félagið hefur fólk bundist tryggðarböndum fyrir lífstíð, notið endurnærandi ferðalaga um landið og öðlast þekkingu á landinu okkar,“ segir Gunnar Már Gunnarsson nýkjörinn formaður Ferðafélags Akureyrar, FFA. Félagið fagnaði 90 ára afmæli, 8 apríl, var stofnað þann dag árið 1936.