Fyrstu lundarnir mættu til Grímseyjar í dag, 9 apríl. Það sást til þeirra skammt fyrir utan ströndina í gær og í dag tóku systurnar Unnur og Halla Ingólfsdætur eftir þeim í björgunum suður við vitann.
Það hefur tekið vel upp af snjónum í hlýindum undanfarna daga þannig að lundinn ætti að eiga auðvelt með að nálgast holurnar sínar og hefja vortiltektina.
Frá þessu segir á grimsey.is