Bragð af Persíu í Kelduhverfi

Hjónin Egill Bjarnason og Sigrún Björg Aðalgeirsdóttir tóku við Hótel Skúlagarð fyrir rúmlega þremur…
Hjónin Egill Bjarnason og Sigrún Björg Aðalgeirsdóttir tóku við Hótel Skúlagarð fyrir rúmlega þremur árum og hafa á þeim tíma bryddað upp á ýmsum nýjungum.

Persnesk matargerð verður í aðalhlutverki á Hótel Skúlagarði í Kelduhverfi föstudaginn 16. og laugardaginn 17. október. Þar mun Sahar Pahlevanzadeh sjá um þrírétta máltíð. Að sögn Egils Bjarnasonar hótelstjóra hefur hugmyndin að kvöldunum hefur verið til umræðu frá því hún flutti í sveitina fyrr á þessu ári.

 

Sahar býr ásamt eiginmanni sínum, Amin Asghali, í Austurgarði í Kelduhverfi og starfar um þessar mundir í mötuneyti Öxarfjarðarskóla. Hún hefur lengi fengist við matseld en samkvæmt viðburðarlýsingunni er þetta í fyrsta sinn sem hún býður til matarkvölds með réttum frá heimalandinu. Það gerir hún eftir mikla hvatningu frá fólki sem þekkir til matargerðar hennar.

Egill í Skúlagarði segir að fyrst um sinn hafi hann ekki vitað að Sahar væri reynslumikil matselja. Sjálfur kynntist hann persneskri matargerð þegar hann starfaði um stutta hríð á hóteli í írönsku borginni Yazd um tvítugt.

„Íran er frjósamt landbúnaðarland, með fjölbreyttum og flóknum matarhefðum,“ segir Egill. Áður en hann kom þangað hafði hann ferðast um Pakistan og Afganistan og þótti merkilegt hversu frábrugðin persneska matargerðin væri þeirri sem hann hafði kynnst í nágrannaríkjunum.

Á matseðlinum verður Mirza Ghasemi, grillað eggaldin með tómötum og hvítlauk, borið fram með stökkristuðu pítubrauði. Í aðalrétt verður Ghormeh Sabzi, einn þekktasti réttur Írans. Þetta er hægeldaður pottréttur með lambakjöti, baunum og þurrkuðum persneskum lime, borinn fram með saffranhrísgrjónum. Máltíðinni lýkur með persneskri eplaköku með kanil og kardimommum. Sami matseðill verður bæði kvöldin.

Aðspurður við hverju gestir megi búast segir Egill: „Þeir mega búast við notalegu haustkvöldi í góðum hópi.“ Nánast fullbókað er á laugardagskvöldið.

Þemakvöld hafa áður verið haldin í Skúlagarði. Síðasta haust kom danski kokkurinn María Inga Hansen í heimsókn og komust þá færri að en vildu. Í nóvember stendur til að halda fjölskylduvænan viðburð með ítölsku þema.

Borðhald hefst klukkan 19 bæði kvöldin og kostar þrírétta máltíðin 9.000 krónur á mann. Takmarkað pláss er í boði og nauðsynlegt að panta borð með því að senda Hótel Skúlagarði skilaboð.

Nýjast