Fyrstu helgina í aðventu verður sannkölluð hátíðarstemning í Hlíðarbæ í Hörgársveit þegar aðventusýning Norðlenskrar hönnunar og handverks fer fram. Þar gefst gestum einstakt tækifæri til að hitta hönnuði, handverksfólk og sælkerameistara úr héraði, skoða fjölbreytt úrval gæðaafurða og hefja jólainnkaupin með notalegum hætti.
Á sýningunni verða um 25 sýnendur með eigin bása þar sem boðið verður upp á vandaðar og handunnar vörur af ýmsum toga. Gestir geta meðal annars fundið fallegar hönnunarvörur, skó, keramík, skartgipi, handverk úr tré, handgerðar sápur og kerti, dagbækur og dagatöl, fatnað fyrir börn og fullorðna auk fjölbreyttra matvæla frá framleiðendum svæðisins. Með því að versla beint við framleiðendur fá gestir tækifæri til milliliðalausra viðskipta og kynnast sögunum á bak við vörurnar.
Hefur fest sig í sessi
Aðventusýningin hefur fest sig í sessi sem vinsæll viðburður á Norðurlandi þar sem margir sýnendur snúa aftur ár eftir ár. Jafnframt bætast nýir þátttakendur reglulega í hópinn og því er ávallt eitthvað nýtt og spennandi að sjá. Að sögn skipuleggjenda hefur vöruúrvalið aldrei verið jafn fjölbreytt og nú.
Ekki verður aðeins boðið upp á hönnun og handverk. Á svæðinu verður kökubasar þar sem góðgerðarfélög leggja sitt af mörkum til að skapa hlýlega aðventustemningu. Á laugardeginum sér Kvenfélag Hörgdæla um kökusöluna en á sunnudeginum tekur Vonarbrú almannaheillafélag við keflinu. Vonarbrú verður einnig með kertasölu og handverk til styrktar barnafjölskyldum í neyð á Gaza.
Gestum býðst að njóta ilmandi kaffibolla frá Nýju kaffibrennslunni, fá sér piparkökur og eiga notalega stund. Sýningin er opin frá kl. 11 til 17 bæði á laugardag og sunnudag og aðgangur er ókeypis.

Sýningarstjórarnir Kristín S. Bjarnadóttir og Kjartan Reynir Ólafsson