Ómissandi jólastemning í Safnahúsinu á Húsavík

Jólabærinn minn er falleg hefð sem hefur verið í mótun undanfarin ár. Myndir/Aðsendar.
Jólabærinn minn er falleg hefð sem hefur verið í mótun undanfarin ár. Myndir/Aðsendar.

Jólamarkaðurinn Jólabærinn minn verður haldinn í þriðja sinn í Safnahúsinu á Húsavík föstudaginn 27. nóvember kl. 16–20 og laugardaginn 28. nóvember kl. 12–16. Viðburðurinn er óðum að festa sig í sessi í jólahaldi Húsavíkinga en yfir 700 gestir sóttu Safnahúsið heim þessa helgi í fyrra. Í ár verða 13 söluaðilar með fjölbreytt úrval af handverki, hönnun, matvörum og gjafavörum.

Jólamarkaðurinn á rætur sínar að rekja til samnefndrar aðventuhátíðar Húsavíkurstofu sem um árabil hefur staðið fyrir fjölbreyttum viðburðum í bænum fyrstu helgina í aðventu. Þegar markaðurinn var fyrst haldinn í Safnahúsinu árið 2024 var meðal annars lögð áhersla á að nýta húsið betur sem vettvang fyrir menningar- og fjölskylduviðburði. Samhliða markaðnum var boðið upp á myndlistarsýningu, piparkökuhúsakeppni og föndur á bókasafninu.

Dagný Theodórsdóttir, verkefnastjóri Menningarmiðstöðvar Þingeyinga, segir undirbúninginn hafa gengið afar vel og að eftirspurn eftir sölubásum hafi verið mikil.

„Plássin á jólamarkaðinn fylltust á mjög stuttum tíma eftir að við auglýstum. Nokkrir aðilar taka nú þátt í markaðnum þriðja árið í röð og er það mjög ánægjulegt. Við ákváðum í ár að hafa mjög hóflegt verð á hverju plássi en markmið viðburðarins er fyrst og fremst að fá fólk saman og skapa góða stemningu við upphaf aðventunnar,“ segir Dagný.

Skemmtileg hefð í mótun

Dagskráin verður með svipuðu sniði og undanfarin ár en viðburðurinn er samstarfsverkefni Menningarmiðstöðvar Þingeyinga, Tónlistarskóla Húsavíkur og Candybar Norðurlands. Nemendur tónlistarskólans sjá um tónlistarflutning og verður piparkökuhúsakeppnin á sínum stað.

Keppnin á sér raunar lengri sögu en jólamarkaðurinn í Safnahúsinu. Árið 2023 var efnt til sýningar á piparkökuhúsum í húsinu og í umfjöllun Vikublaðsins árið 2024 lagði Sólveig Ása Arnarsdóttir, þá starfsmaður Húsavíkurstofu, áherslu á að samvera fjölskyldunnar við gerð piparkökuhúsanna væri ekki síður mikilvæg en keppnin sjálf.

Candybar Norðurland sér um veitingasölu um helgina og býður meðal annars upp á súpu og bakkelsi. Þá stendur starfsfólk Candybar fyrir góðgerðarlottói sem dregið verður úr báða dagana.

Í fyrra var komið upp jólalegum bakgrunni hjá ísbirninum í Safnahúsinu þar sem gestir gátu tekið skemmtilegar jólamyndir. Stefnt er að því að gera enn betur í ár.

„Við erum alltaf opin fyrir breytingum og nýjum hugmyndum en viljum um leið halda í það sem hefur reynst vel og skapað góða stemningu,“ segir Dagný og bætir við að á næsta ári sé stefnt að samstarfi við Leikfélag Húsavíkur.

Mikilvægur vettvangur fyrir handverksfólk

Jólamarkaðurinn er jafnframt kærkomið tækifæri fyrir heimaframleiðendur og handverksfólk á svæðinu til að koma vörum sínum á framfæri og ná til fjölbreytts hóps viðskiptavina. Dagný segir mikils virði að skapa vettvang þar sem framleiðendur og viðskiptavinir geti hist augliti til auglitis.

„Það er alltaf gaman að gefa og þiggja einstakar jólagjafir og það er jú ekki hægt að kaupa allt á netinu!“

Góð aðsókn síðasta árs og mikill áhugi söluaðila í ár benda til þess að markaðurinn hafi mælst vel fyrir. Með því að tvinna saman handverk, menningu, tónlist og fjölskylduvæna afþreyingu hefur skapast vettvangur í Safnahúsinu þar sem bæjarbúar geta komið saman og tekið forskot á aðventuna.

Þess ber einnig að geta að uppúr klukkan 19 í kvöld mun Axel Flovent stíga á stokk og taka nokkur lög fyrir gesti.

Nýjast