Ríkisstjórnin ákvað á fundi í morgun að hefja vinnu við að fá fjórðu þyrluna til landsins og að sú þyrla verði staððsett á Akureyri Mynd NTF
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að byggja þyrluskýli á Akureyri og staðsetja fjórðu þyrlu Landhelgisgæslunnar hér fyrir norðan til frambúðar. Ákvörðunin markar mikilvægt skref í þágu öryggis íbúa og bættri viðbragðsgetu, hvort sem um er að ræða björgun á sjó, í fjöllum eða útköll vegna slysa á Norður- og Austurlandi.
Njáll Friðbert Traustason þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur barist ötullega í mörg ár fyrir þvi að þyrla LHG verði staðsett á Akureyri og hann skrifar þetta á Facebookvegg sinn:
,,Það ber að fagna ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að bæta fjórðu þyrlunni við flota Landhelgisgæslunnar og hefja þegar í stað undirbúning að byggingu flugskýlis á Akureyrarflugvelli fyrir flugdeild Gæslunnar. Ég lýsi fullum stuðningi við þessi áform. Ákvörðunin markar tímamót í starfsemi Landhelgisgæslunnar og er mikilvægt skref í átt að fastri starfsstöð á Akureyri.
Það er sárt að þessi ákvörðun skuli koma í kjölfar hins hörmulega sjóslyss austur af landi þar sem þrír sjómenn fórust þegar Jökull ÞH-299 sökk. Ég sendi fjölskyldum þeirra, aðstandendum og félögum þeirra í áhöfninni á ný mínar dýpstu samúðarkveðjur. Hugur minn er hjá þeim á þessari erfiðu stundu. Ég vil einnig þakka öllum þeim sem komu að björgun skipverjanna við afar erfiðar aðstæður."
Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri á Akureyri lýsir ánægju sinni á samfélagsmiðlum: ,, Þetta er mikilvægt skref í þágu aukins öryggis og betri viðbragðsgetu á Norðurlandi. Vonandi verður þess ekki langt að bíða að þessi mikilvæga aðstaða verði að veruleika.
Þessum tíðindum fylgja blendnar tilfinningar. Aðdragandinn er hræðilegur og minnir okkur á hvers vegna öflug viðbragðsgeta og góð aðstaða skiptir svo miklu máli.
Eftir áralanga baráttu fyrir bættri aðstöðu og þyrlu á Akureyri er engu að síður ástæða til að fagna því að ríkisstjórnin ætli nú að byggja þyrluskýli á Akureyri og auka öryggi og bæta viðbragðsgetu."
Aðdragandinn er þungur.
Atburðir síðustu daga á minna okkur grimmilega á hvers vegna það skiptir máli á hafa björgunaþyrlu staðsetta víðar en á Reykjavikurflugvell, þegar mínútur skipta máli, en eftir áralanga baráttu heimamanna, sveitarfélaga, björgunarsveita og þingmanna kjördæmisins sér nú loks fyrir endan að þeirri baráttu.
Nú er mikilvægt að verkinu verði hraðað og þessi mikilvæga aðstaða verði sem fyrst að veruleika.