Bókarkynning Skemmtilegar sögur frá Akureyri fyrri tíma í nýrri bók Sigmundar Ernis Uppfært Vegna ófærðar í lofti þarf að fresta þessari kynningu!

Sigmundur Ernir Rúnarsson kynnir bókina BARNABÓK á Amtsbókasafninu í dag, 26. nóvember, klukkan 17
Sigmundur Ernir Rúnarsson kynnir bókina BARNABÓK á Amtsbókasafninu í dag, 26. nóvember, klukkan 17

Sigmundur Ernir Rúnarsson kynnir bókina BARNABÓK á Amtsbókasafninu í dag, 26. nóvember, klukkan 17. Þar dregur hann upp skemmtilega og forvitnilega mynd af lífinu á Akureyri á sjöunda áratug síðustu aldar, þegar nægjusemi, nýtni og útsjónarsemi voru meðal helstu dyggða fólks.

Munnmælasögur sem rifja upp horfinn tíma

Sigmundur Ernir er alinn upp á Syðri-Brekkunni á Akureyri og sækir efnivið bókarinnar meðal annars í minningar og munnmælasögur frá æskuárunum. Þar er brugðið upp lifandi mynd af samfélagi þar sem fólk byggði hús sín hægt og bítandi, hurð fyrir hurð, á tímum hafta og óðaverðbólgu.

Eftir seinna heimsstríð fjölgaði Akureyringum ört og fyrstu hverfi bæjarins tóku á sig mynd. Á meðan Innbærinn kúrði undir kambi og Oddeyrin þétti raðirnar, flengdist Brekkan upp í hlíð og Þorpið blés í norður. Þar að baki stóð alþýðufólk sem reisti hús sín á mörgum árum, hurð fyrir hurð, á tímum hafta og óðaverðbólgu, svo ekki voru efni á gólfteppi fyrr en seint og um síðir, ef rétti bankastjórinn var á vakt. Annars var þetta vinna hjá Verksmiðjunum og ÚA, en Sjallinn um helgar. Nýja Akureyri er svo miklu fjölbreyttari en sú gamla má ekki gleymast.

Sögurnar sem eru sagðar sannarlega  bæði forkostulegar og gamansamar en jafnframt mikilvægar heimildir um samfélag og mannlíf sem tilheyrir nú horfnum tíma.

Bókarkynningin fer fram sem  fyrr sagði á Amtsbókasafninu í dag klukkan 17. Kaffiterían verður opin og gestum boðið að njóta veitinga samhliða kynningunni.

Nýjast