Kvennakór Akureyrar heldur upp á 25 ára afmæli sitt með hátíðartónleikum í Glerárkirkju laugardaginn 28. nóvember klukkan 16. Kórinn var stofnaður árið 2001 og hefur starfað óslitið síðan.
„Kórinn hefur á að skipa um 50 öflugum og skemmtilegum konum á öllum aldri, allt frá 16 ára til 75 ára. Það sem sameinar okkur er gleðin við að syngja saman, bæði fyrir okkur sjálfar og aðra,“ segir Helga Hólmfríður Gunnlaugsdóttir, ein kórkvenna.
Hugmynd um stofnun kvennakórs kom fyrst fram árið 1997 en um það leyti var blandaði KA-kórinn stofnaður. Erfitt reyndist þó að manna karlraddir og þegar leið að árinu 2001 var ákveðið að stofna sérstakan kvennakór. Í upphafi voru aðeins 16 konur í kórnum.
Skemmtilegir fastir liðir
Kórinn æfir að jafnaði einu sinni í viku og tekur reglulega þátt í fjölbreyttum verkefnum. Árlega heldur hann tvenna tónleika á Akureyri auk þess sem kórfélagar fara reglulega í söngferðir, bæði innanlands og utan. Fastur liður í starfseminni er að syngja fyrir íbúa Hlíðar og Lögmannshlíðar á aðventunni.
Kvennakór Akureyrar hefur verið virkur þátttakandi í starfi Landssamtaka kvennakóra, Gígjunni, frá stofnun þeirra árið 2003 og tekið þátt í fimm landsmótum íslenskra kvennakóra. Árið 2014 var kórinn gestgjafi stærsta landsmóts kvennakóra sem haldið hefur verið hér á landi.
„Undanfarin ár höfum við sungið við messu á mæðradaginn í Akureyrarkirkju og að henni lokinni haldið tónleika sem enda með glæsilegu kaffihlaðborði. Það er alltaf eitthvað skemmtilegt í gangi hjá okkur,“ segir Helga.

Sigrún Magna Þórsteinsdóttir stjórnandi Kvennakórs Akureyrar
Afmælistónleikar með jólalegu ívafi
Afmælistónleikarnir verða með jólalegum blæ og endurspegla að hluta til sögu kórsins. Á efnisskránni verða verk eftir fyrrverandi stjórnendur og tónskáld sem tengst hafa kórnum í gegnum tíðina, auk laga sem skipað hafa sérstakan sess í sögu hans.
Meðal annars verður flutt lag eftir Daníel Þorsteinsson við ljóð Önnu Dóru Gunnarsdóttur, kórfélaga í Kvennakór Akureyrar. Verkið var samið í tilefni af 10 ára afmæli kórsins og frumflutt á afmælistónleikum árið 2011. Einnig verða flutt verk eftir Jaan Alavere við texta Anítu L. Þórarinsdóttur, Björn Leifsson og Gunnar Þórðarson, en eitt laga hans var útsett fyrir kórinn af Arnóri Vilbergssyni þegar hann stjórnaði honum.
„Efnisskráin sameinar falleg íslensk kórlög, hugljúf jólalög og sígild meistaraverk. Áheyrendur fá að njóta fjölbreyttrar tónlistar sem fangar töfra vetrarins og jólanna með lögum um birtu, kærleika, frið og von. Þetta er hlý og notaleg blanda af íslenskri kórtónlist, fallegum jólalögum og hátíðlegum klassískum verkum sem skapa einstaka vetrar- og jólastemningu,“ segir Helga. „Það er einstaklega gefandi og lærdómsríkt að vera í kór.“
Að lokum vitnar hún í kvæði eftir Heiðdísi Norðfjörð, fyrrverandi kórfélaga:
Allur söngur göfgar glæðir,
græðir dýpstu sálarmein,
allan kulda brosið bræðir,
blessuð er hver sála hrein.
Við skulum láta hlýja hljóma,
hljóma um verkin smá og stór,
um Eyjafjörð mun ætíð óma
Akureyrar kvennakór.
Miðaverð á tónleikana er 5.000 krónur. Ekki verður posi á staðnum en hægt er að leggja inn á reikning kórsins. Frítt er fyrir börn 14 ára og yngri.
