Guðbjörg Ringsted opnar málverkasýningu í Mjólkurbúðinni

Guðbjörg Ringsted opnar málverkasýninguna ,,Hring eftir hring“ í Mjólkurbúðinni
Guðbjörg Ringsted opnar málverkasýninguna ,,Hring eftir hring“ í Mjólkurbúðinni

Guðbjörg Ringsted opnar málverkasýninguna ,,Hring eftir hring“ í Mjólkurbúðinni, sal Myndlistarfélagsins á Akureyri á morgun laugardaginn 28. nóvember kl. 14. Sýningin verður opin til kl. 18 þann dag.

Guðbjörg sýnir ný verk og viðfangsefnið er sem fyrr útsaumsblóm af íslenskum kven- þjóðbúningum. Guðbjörg hefur unnið með þetta þema í nokkur ár og vinnur frjálst með efnið. Það má e.t.v. segja að blómin öðlist sitt eigið líf á myndfletinum og fari sínar eigin leiðir. Oft er þar einhverskonar dans blómanna á myndfletinum eða frelsisþrá, eitt blómanna skýst af leið eða sker sig úr á annan hátt.

Guðbjörg sýnir ný verk og viðfangsefnið er sem fyrr útsaumsblóm af íslenskum kvenþjóðbúningum

Guðbjörg útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1982, grafíkdeild, og hefur unnið að myndlist síðan þá. Fyrst með grafíkina, síðan teikningar en akrýlmálverkið er nú allsráðandi. Þetta er 37.einkasýning Guðbjargar en samsýningarnar eru rúmlega fimmtíu.

Sýningin stendur til 6.desember og er opin frá kl. 14 – 17 alla dagana.

Nýjast