Í yfirlýsingu frá bæjarstjórn Akureyrar sem send var út í dag segir að hugur bæjarstjórnar sé hjá fjölskyldum þeirra sem slysið snertir.
Jafnframt þakkar bæjarstjórn viðbragðsaðilum fyrir það þrekvirki sem unnið var í aðgerðum undanfarinna daga.
Í yfirlýsingunni er einnig fagnað ákvörðun ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í dag um uppbyggingu þyrluskýlis á Akureyri og að fjórða þyrla Landhelgisgæslunnar verði staðsett hér fyrir norðan.
„Ákvörðunin er mikilvægt skref í þágu aukins öryggis og bættrar viðbragðsgetu á Norður- og Austurlandi," segir í yfirlýsingunni.
Bæjarstjórn mun leggja sitt af mörkum til þess að uppbyggingin geti gengið vel og leggur áherslu á að aðstaðan komist í gagnið eins fljótt og unnt er.