Fyrsta húsið á uppfyllingu við Torfunef senn tilbúið

Framkvæmdir við þjónustuhús Hafnasamlags Norðurlands á Torfunefsbryggju ganga samkvæmt áætlun
Framkvæmdir við þjónustuhús Hafnasamlags Norðurlands á Torfunefsbryggju ganga samkvæmt áætlun

Framkvæmdir við þjónustuhús Hafnasamlags Norðurlands á Torfunefsbryggju ganga samkvæmt áætlun og er stefnt að því að verkinu ljúki fyrir áramót.

Pétur Ólafsson, hafnastjóri HN segir að verið sé að skoða minniháttar breytingar á deiliskipulagi svæðisins.

Bygging HN á Torfunefi er tæplega 170 fermetrar að stærð á einni hæð. Ráðgert er að nýta þak þjónustuhússins sem útsýnispall sem og áhorfendapalla fyrir viðburði, en þakuppbyggingin myndar áhorfendabekki sem snúa að torgi framan við bygginguna. Það er hugsað sem afdrep og dvalarstaður fyrir lifandi starfsemi og viðburði fyrir íbúa og gesti bæjarins í hjarta Akureyrar

Nýjast