Nýlega var kjördæmavika og við þingmenn Norðausturkjördæmis ferðuðumst saman um kjördæmið, hittum sveitarstjórnarfólk, fyrirtæki, forstöðumenn hinna ýmsu stofnana og áttum mörg góð samtöl um þau verkefni sem helst brenna á íbúum. Einn af rauðu þráðunum í þessum samtölum, sérstaklega á Norðurlandi eystra, var staðan á Kristnesi. Skilaboðin voru skýr. Það bráðvantar framtíðarsýn fyrir endurhæfingarþjónustuna og það þarf að taka ákvarðanir.
Ég vil sjá Kristnes verða aftur miðstöð sérhæfðrar endurhæfingar á Norður- og Austurlandi. Ég er ekki sannfærður um að þeirri þjónustu sé betur komið fyrir annars staðar á Eyjafjarðarsvæðinu. Áður en horfið er frá uppbyggingu á Kristnesi fyrir endurhæfingu þarf að liggja fyrir faglegt mat á því hvaða þjónustu fólk þarf, hvaða aðstaða hentar henni best og hvernig þau verðmæti sem þegar eru til staðar nýtast til framtíðar.
Starfsfólk endurhæfingar- og öldrunarlækningarþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri hefur kallað eftir einmitt þessu í opnu bréfi til ráðherra og þingmanna. Þar er lögð áhersla á að horfa til þjónustuþarfar næstu áratuga og meta endurbætur á Kristnesi af fullri alvöru. Ég tek undir það ákall.
Endurhæfing snýst um að fólk nái aftur færni, sjálfstæði og lífsgæðum eftir veikindi, slys eða áföll. Þá skiptir umhverfið máli. Á Kristnesi er sundlaug sem hefur nýst til vatnsþjálfunar, útisvæði og nálægð við náttúruna. Staðurinn er skammt frá Akureyri en um leið fjarri annríkinu bráðasjúkrahúss. Þessi aðstaða hefur verið nýtt markvisst í endurhæfingu og hana þarf að meta sem hluta af þjónustunni.
Sérhæfð endurhæfing á að öllu jöfnu ekki heima á bráðasjúkrahúsi. Þarfir sjúklinga geta þó verið misjafnar og náin tengsl við aðra sjúkrahúsþjónustu geta verið mikilvæg. En við eigum líka að horfa til þess hvers konar umhverfi styður fólk í að komast aftur út í daglegt líf. Starfsfólkið sem hefur byggt upp þjónustuna á Kristnesi hefur mikla þekkingu á því og þarf að eiga ríkan þátt í ákvörðunum um framhaldið.
Bráðabirgðalausnir hafa fundist fyrir þjónustuna á Akureyri. Starfsfólk SAk á stórt hrós skilið fyrir þá vinnu sem það hefur lagt á sig til að standa vörð um hana við erfiðar aðstæður. En sú staða er ekki sjálfbær til lengdar. Það fólk lifir við óvissu og starfar í bráðabirgðaúrræðum munar miklu um það ef maður veit hvað á að taka við og hvenær. Fólk þarf að sjá ljós við enda ganganna.
Óvissan er vond og tíminn vinnur ekki með okkur. Ef reynt starfsfólk leitar annað getur sérfræðiþekking og samstarf sem hefur byggst upp á áratugum tapast á skömmum tíma. Á landsbyggðinni getur þetta jafnframt þýtt að fólk flytji úr héraði. Það getur tekið mörg ár að byggja slíka þekkingu upp á ný.
Við þurfum því að vinna að tveimur verkefnum samhliða. Heilbrigðisráðuneytið þarf að skýra framtíð þjónustunnar og fjármála- og efnahagsráðherra þarf að leiða vinnu við að verja fasteignir ríkisins á Kristnesi. Kristnes er sögufrægur staður sem við verðum að standa vörð um. Við getum ekki látið húsnæðið grotna niður og horft upp á draugabæ verða til á besta stað í Eyjafjarðarsveit. Að mínu mati er full ástæða til að vinna að því að þessi tvö verkefni leysist saman með enduruppbyggingu endurhæfingar á Kristnesi.
Ég fagna hvítbók heilbrigðisráðherra um endurhæfingarþjónustu og áherslum hennar á jafnt aðgengi og samfellda þjónustu. Það er gott og mikilvægt starf og ég hvet ráðherra til dáða. Húsnæðismálin eru utan umfjöllunar hvítbókarinnar og því þarf sérstaklega að tryggja að ákvarðanir um þau styðji við framtíðarsýnina um þjónustuna.
Boltinn er hjá ríkisstjórninni. Nú þarf að vinna hratt, í nánu samstarfi við starfsfólkið, og leggja fram skýra, tímasetta áætlun. Við eigum að nýta þá þekkingu, aðstöðu og reynslu sem hefur byggst upp á Kristnesi. Starfsfólk og sjúklingar þurfa að vita hvert við stefnum.
Höfundur er þingmaður Norðausturkjördæmis.