Bókarkynning - Fuglar í íslenskri náttúru

María Björg Gunnarsdóttir er höfundur bókarinnar  Fuglar í íslenskri náttúru
María Björg Gunnarsdóttir er höfundur bókarinnar Fuglar í íslenskri náttúru

Komin er út bókin Fuglar í íslenskri náttúru höfundur er María Björg Gunnarsdóttir

 Fuglar í íslenskri náttúru er ljósmynda- og fræðibók þar sem María Björg Gunnarsdóttir sameinar áralangan áhuga sinn á fuglalífi, ljósmyndun og sögunum á bak við íslenska fugla og hér er afraksturinn á fallegri bók..

Í íslenskri náttúru eru augnablik sem lifa lengur en orð fá lýst. Fuglar tilheyra þeim augnablikum. Þeir birtast og hverfa með vindinum, eins og hluti af birtunni sjálfri — svartir punktar yfir gráum vetrarhimni, hvítir vængir yfir briminu. Auk mynda kynnir höfundur mismunandi tegundir og segir frá því hvernig fuglarnir lifa og haga sér í sínu náttúrulega umhverfi.  Hver fugl á sína sögu,  markmið Maríu er að vekja forvitni lesenda og benda á að með því að þekkja fuglana betur lærum við að meta náttúruna og vernda hana.

 

Nýjast