Bókarkynning - Veiðivinir 2

Gunnar Bender er höfundur bókarinnar  Veiðivinir 2
Gunnar Bender er höfundur bókarinnar Veiðivinir 2
Komin er út barnabókin Veiðivinir 2 eftir Gunnar Bender sem er framhald um veiðiævintýri vinanna Bjarna og Páls.
 

Að þessu sinni er ferðinni heitið í Veiðivötn, sem er náttúruperla rétt vestan við Vatnajökul. Veiðivötn samanstanda af allt að 50 vötnum sem dreifast um stórt svæði og hægt að veiða fisk í þeim öllum, urriða og bleikjur.

Páll og Bjarni geta vart beðið eftir að komast úr bænum til að upplifa ævintýrin sem bíða þeirra í sumarfríinu. Líklegast kynnast þeir einnig nýju fólki og frægu, stórsöngvurum, veiðistúlkum og furðuverum, sem gerir fríið enn skemmtilegra.

Spennandi bók fyrir unga lesendur og áhugafólk um vináttu, veiðar og útiveru.

Nýjast