Einhver allra skemmtilegasti tími ársins er framundan Það er eitthvað einstakt við jólin. Dagarnir styttast, myrkrið færist yfir og veturinn breiðir úr sér, Jólaljósin fara á stjá í öllum götum bæjarins, ljós sem yljar okkur um hjartarætur. Íslenska skammdegið getur auðvitað verið dimmt og kalt, en einmitt þá minna jólin okkur á hversu dýrmætt það er að vera í flæðinu og taka þetta alla leið inn.
Allt byrjar þetta á aðventunni. Smám saman taka jólaljósin að birtast í gluggum og görðum. Ljósaseríur lýsa í trjám, aðventukransar prýða heimilin og húsin klæðast hátíðarbúningi. Það er eins og hvert lítið ljós hvísli að okkur að þótt myrkrið sé mikið er birtan aldrei langt undan. Jólaljósin færa okkur von, hlýju og eftirvæntingu.
Hvert heimili á sínar hefðir, sínar uppskriftir og sínar dýrmætu minningar. Oft er það ekki maturinn sjálfur sem skiptir mestu máli, heldur samveran við borðið, hláturinn, sögurnar og gleðin sem fylgir því að vera saman.Í mínum huga er þetta sá tími ársins sem gott er að líta í eigin barm og verðlauna sig með minningum sem svo sannarlega streyma fram þegar maður sest niður og gefur sér tíma að vera í sínu eigin flæði.
Endalausar minningar frá bernskuárumun og auðvitað minningar sem maður býr sér til með sínum nánustu í núinu. Það er líka gott að hugsa til þeirra sem áður sátu með okkur við jólaborðið en eru nú farnir. Minningarnar um þau verða sérstaklega hlýjar á þessum árstíma og minna okkur á að kærleikurinn lifir áfram, jafnvel þótt árin líði. Ekkert er samt dýrmætara í mínum huga heldur en segja barnabörnunum sögur frá mínum uppvaxtarárunum. Sögur sem ég vona að þau haldi á lofti í framtíðinni.
Á mínum uppvaxtarárum var ég forréttindabarn, ég fékk að slíta barnsskónum mínum í hverfi í Reykjavík sem var þá í uppbyggingu, Breiðholtinu. Breiðholtið er best skipulagðasta hverfi á Íslandi að mínu viti.
En aftur að minningum.Ég man sérstaklega eftir því hvað ég beið spenntur þegar pabbi sagði einn morgun að hann kæmi heim með eplakassa eftir vinnu. Ég er að tala fullann kassa að eldrauðum safaríkum eplum.Ilmurinn að eplunum gerði það að verkum að ég lagðist út af og má segja að ég hafi ofandað til að taka þennan guðdómlega ilm inn um vitund mín.
Ég er að átta mig á því á þessu stað í pistlinum að ég er að eldast, ég er byrjaður að hljóma eins og afi minn forðum, ég glotti út í annað og skelli svo uppúr einn með sjálfum mér.
Því læt ég staðar numið.
