Dreymir um að auka veg íþróttarinnar

Hópurinn úti í Hollandi en þar kynntu þau sér allt sem viðkemur skautahlaupi
Hópurinn úti í Hollandi en þar kynntu þau sér allt sem viðkemur skautahlaupi

„Það er frelsið. Þú getur ferðast hratt fyrir eigin afli án þess að nota t.d. hjól eða skíðalyftur. Þetta er líka frábær líkamsrækt fyrir fætur og rassvöðva og bætir jafnvægi og þol,“ segir Erwin van der Werve skautahlaupari um hvað best sé við íþróttina sem hann hefur mikla ástríðu fyrir. Hann vinnur að því að auka útbreiðslu hennar hér á landi. Sem stendur æfa um 12 til 15 manns hér á landi skautahlaup. „Það er fátt skemmtilegra en að fara í gegnum beygju á 40 kílómetra hraða. En það sem skiptir kannski mestu máli er að þetta er íþrótt sem öll fjölskyldan getur stundað saman. Börn, foreldrar, afar og ömmur geta verið saman á ísnum og notið þess. Það er það sem gerir skautahlaup svo sérstakt,“ bætir hann við.

Nýlega fékk íslenskt skautafólk tækifæri til að kynnast íþróttinni á hæsta stigi þegar hópur skautahlaupara, iðkendur og þjálfarar frá nokkrum félögum hér á landi héldu í æfingabúðir í Hollandi. Þar gafst einstakt tækifæri á að fylgjast með fremsta skautafólki heims við æfingar í hinni þekktu Thialf-skautahöll, sem verður meðal annars keppnisvettvangur á næstu Vetrarólympíuleikum.

Erwin van der Werve 

 Eins og að vera boðið til Real Madrid

Erwin segir það hafa verið magnað að fylgjast með bestu skautahlaupurum heims úti í Hollandi. „Fyrir skautahlaupara er þetta eiginlega eins og að vera boðinn til Real Madrid eða Barcelona og fá að fylgjast með æfingum þar. Við fengum að sjá alla stærstu stjörnur Hollands æfa, hitta þjálfarana, styrktarþjálfara og sjúkraþjálfara og sáum hvernig allt umhverfið í kringum afreksfólkið virkar.“

Hópurinn fylgdist með æfingum skautara á borð við Jens van 't Wout, Xandra Velzeboer og Femke Kok, sem hafa unnið til fjölda verðlauna á stórmótum. „Við fengum líka að fara í skautaverksmiðju og sjá hvernig búnaðurinn er þróaður og lagaður að þörfum íþróttafólks. Þetta gaf okkur mikla innsýn sem við getum nýtt hér heima.“

Erwin segir að á bak við góðan árangur liggi markvissar æfingar af ýmsu tagi og íslenski hópurinn hafi fengið innsýn í þær auk þess að byggja upp mikilvæg tengsl við erlenda þjálfara sem hægt er að leita til í framtíðinni. „Við getum margt lært af skautamenningu í Hollandi. Náttúrulegur ís hefur þar reyndar verið að skornum skammti undanfarin ár, en þeir hafa engu að síður lagt mikla áherslu á að kynna börnum skautaíþróttina. Það sem heillaði mig mest var að sjá alla aldurshópa á ísnum á sama tíma, frá ungum börnum upp í eldri borgara.“

Vill halda skautahlaupskeppni á Hrafnagili

Erwin á sér þann draum að byggja þessa íþrótt, skautahlaupið upp hér á landi og telur það raunhæft markmið. „Við höfum í raun frábærar forsendur til þess. Hér eru margir sem hafa reynslu af listskautum eða íshokkí en vilja kannski ekki halda áfram í þeim greinum. Fyrir þann hóp getur skautahlaup verið fullkomin leið til að halda áfram að njóta þess að vera á ísnum,“ segir hann og bendir á að aðstæður á Íslandi séu að mörgu leyti betri en víða erlendis. „Í Hollandi eru margar skautahallir lokaðar frá vori og fram á haust vegna hita. Á Íslandi getum við haft ís nánast allt árið. Það er stór kostur sem fólk gerir sér kannski ekki grein fyrir.“

Á liðnu ári útbjó Erwin 400 metra braut á hlaupabrautinni á Hrafnagili með hjálp frá sveitarfélaginu og segir að með því hafi verið sýnt fram á að slíkt er gerlegt. „Það þarf í raun ekki nema smá skipulag, sjálfboðaliða og réttar veðuraðstæður,“ segir hann og nefnir þann draum sinn að haldin verði skautahlaupskeppni í Hrafnagili í tengslum við 90 ára afmæli Skautafélags Akureyrar „Það yrði fyrsta 400 metra brautarkeppnin á Íslandi í meira en fjóra áratugi og sú fyrsta á heimalöguðum útisvelli. Það væri stórt skref fyrir íþróttina.“

Mývatn einstakur staður fyrir skautahlaup

Þá nefnir Erwin að Mývatn sé einstakur staður fyrir skautafólk, en þar myndist oft þykkur og góður ís og með tiltölulega lítilli vinnu sé hægt að útbúa nokkurra kílómetra langa skautabraut. Hann vinnur að því að koma Mývatni á kort skautahlaupara. „Tugþúsundir Hollendinga ferðast árlega til Norður-Svíþjóðar til að skauta á löngum ísleiðum. Ég hef rætt við fólk sem hefur skipulagt alþjóðleg skautamót þar og þau hafa sýnt þeim möguleikum sem Ísland og Mývatn bjóða upp á mikinn áhuga.“

Staðsetningin segir hann vera mikinn styrk en um tvær og hálfa klukkustund tekur að fljúga frá Amsterdam til Akureyrar og bætist við klukkustundar akstur að Mývatni. „Þar getur fólk skautað með eldfjöll og gíga í bakgrunninum og farið síðan í Jarðböðin. Það er eiginlega einstök upplifun.“

Æfingarbúðir á Íslandi yfir sumarið

Á bilinu 12 til 15 manns æfa skautahlaup reglulega hér á landi um þessar mundir, en Erwin væntir þess að iðkendum muni fjölga jafnt og þétt á næstu árum. Æfingar fara fram í Skautahöllinni kl. 7 á fimmtudagsmorgnum og pláss fyrir fleiri iðkendur.

„Mig langar að sjá reglulega opna tíma þar sem fólk getur komið og skautað í hring á öruggan hátt, til dæmis einu sinni í mánuði á Akureyri og í Reykjavík.“

Hann segir jafnframt að Ísland gæti orðið áhugaverður staður fyrir erlendar æfingabúðir. „Ég hef sjálfur farið með dóttur mína í æfingabúðir erlendis og þekki áhugann sem er til staðar. Ef við höldum áfram að byggja upp aðstöðu og öryggi þá sé ég fyrir mér að erlendir hópar komi hingað til æfinga yfir sumartímann.“

 

Nýjast