Neyðarstjórn Norðurorku í viðbragðsstöðu en spáð er hárri sjávarstöðu í nótt

Norðurorka hvetur  Akureyringa til að huga vel að niðurföllum og þá eru fasteignaeigendur á Eyrinni …
Norðurorka hvetur Akureyringa til að huga vel að niðurföllum og þá eru fasteignaeigendur á Eyrinni sérstaklega hvattir til að gera viðeigandi ráðstafanir vegna veðursins. Mynd frá flóðunum árið 2022. Mynd Norðurorka.

Neyðarstjórn Norðurorku hefur í gær og í dag verið í viðbragðsstöðu vegna slæmrar veðurspár fyrir kvöldið og fram á nótt. Spáð er hárri sjávarstöðu rétt eftir miðnætti og óhagstæðri vindátt.

Talið er mögulegt að sambærilegar aðstæður gætu skapast í kvöld, líkt og sköpuðust í september 2022 þegar sjór flæddi yfir hluta Oddeyrar og olli þar miklu tjóni segir í frétt á vef Norðurorku. Starfsfólk fyrirtækisins fylgist grannt með aðstæðum fram eftir kvöldi og fram yfir miðnætti.

"Hlutverk Norðurorku í kvöld, líkt og alla aðra daga ársins, er fyrst og fremst að tryggja að fráveitan sinni sínu hlutverki eins vel og mögulegt er. Það er talið nokkuð öruggt að fráveitan muni ekki hafa undan ef sjór gengur á land líkt og gerðist haustið 2022, þar sem fráveitukerfið er ekki hannað fyrir slíkar aðstæður."

Sem fyrr segir hvetur Norðurorka alla Akureyringa til að huga vel að niðurföllum og þá eru fasteignaeigendur á Eyrinni sérstaklega hvattir til að gera viðeigandi ráðstafanir vegna veðursins.

Nýjast