„Sumarið gekk mjög vel, það varð þónokkur aukning í spiluðum hringjum þegar er skoðað meðaltal á dag, þannig að enn eitt aðsóknarmetið er fallið hvað það varðar,“ segir Steindór Ragnarsson framkvæmdastjóri Golfklúbbs Akureyrar. Jaðarsvöllur er enn opinn og kylfingar á ferðinni á vellinum.
Samanlagt hafa félagar í GA spilað 36.285 samanborið við 37.829 í fyrra en völlurinn er enn opinn og því enn að bætast í hringina. Völlurinn opnaði 23.maí í ár en 12.maí 2025 þannig það skýrir í raun muninn milli ára. „Það er líka skemmtilegt að segja frá því að heimsóknum erlendra kylfinga hafa aukist um tæp 50% og eru alls 518 í ár. Íslenskir golfvellir og Ísland sem áfangastaður fyrir golfara er sífellt að fljúga hærra og hærra,“ segir Steindór.
Opið meðan jarðvegur er ófrosinn
Steindór nefnir að vorið hafi verið kalt og golfsumarið af þeim sökum farið seint af stað. „Jaðarsvöllur hefur verið opinn í 143 daga en í fyrra var alls opið í 158 daga. Að meðaltali voru spilaðir 239 hringir á dag í fyrra en í ár 256 hringir á dag sem er töluverð aukning,“ segir hann. „Fram til þessa hefur veður verið gott og völlurinn í frábæru ástandi, en við eigum eftir að sjá hvað það endist lengi. Völlurinn verður opinn meðan jarðvegurinn er ófrosinn, við lokum þegar frostið í jarðveginum helst yfir daginn.

Vex og dafnar
Steindór segir rekstur Golfklúbbs Akureyrar ganga vel, klúbburinn vex og dafnar. „Það er orðin mikil þörf hjá okkur að endurnýja tækjakostinn og að sinna ýmis konar viðhaldi. Einnig eigum við og sinnum viðhaldi á fasteignunum hér á Jaðri sem þarf að gera vel. Við reynum að gera eins mikið og reksturinn leyfir hverju sinni, en þetta er gríðarlega kostnaðarsamur útgjaldaliður,“ segir hann.
Spilað úti og inni
Alls eru 8 golfhermar í húsakynnum klúbbsins við Jaðarsvöll í glæsilegri inniaðstöðu sem hefur verið opnuð á ný eftir sumarið. „Áhuginn er mikill, kylfingar eru farnir að panta sér tíma langt inn í veturinn. Við erum því um þessar mundir að spila bæði úti og inni og gerum það á meðan veður leyfir.

Búið er að opna golfhermana að Jaðri og kylfingar hafa þegar pantað tíma langt inn í veturinn