Ingólfur Pálsson, evrópskur einkaleyfafulltrúi hjá Dragsted Partners A/S í Danmörku, hefur gengið til liðs við hóp sérfræðinga hjá Drift EA sem kallast Driftarar. Með þátttöku hans eykst aðgengi frumkvöðla að sérfræðiþekkingu á sviði einkaleyfa og verndar hugverka, sem getur skipt sköpum í þróun nýrra lausna og uppbyggingu fyrirtækja.
Drift EA vinnur að því að efla nýsköpun og frumkvöðlastarf á Norðurlandi með fjárfestingum, ráðgjöf, aðstöðu og tengslaneti. Hluti af því starfi er samstarf við hóp sérfræðinga og fyrirtækja, svokallaða Driftara, sem leggja verkefnum lið með þekkingu sinni, reynslu og tengslum við atvinnulífið.
Ingólfur sem er nýr í þeim hópi, starfar sem evrópskur einkaleyfafulltrúi hjá Dragsted Partners A/S í Danmörku. Hann aðstoðar frumkvöðla og fyrirtæki við að meta möguleika á einkaleyfavernd, móta stefnu um vernd uppfinninga og undirbúa og reka einkaleyfisumsóknir á alþjóðlegum vettvangi. Sérþekking hans liggur einkum á sviði vélbúnaðar, iðnaðartækni og tæknilausna, meðal annars á sviði grænna lausna.
Í samstarfinu við Drift EA verður lögð áhersla á að gera einkaleyfaráðgjöf aðgengilega snemma í þróunarferli nýrra verkefna. Þannig geta frumkvöðlar áttað sig á því hvaða þættir lausna þeirra gætu verið verndarhæfir, hvenær rétt sé að huga að vernd og hvernig hún geti stutt við áframhaldandi þróun og verðmætasköpun.
Fjölbreytt sérþekking nýtist frumkvöðlum
Drift EA styður frumkvöðla á mismunandi stigum, meðal annars í gegnum Slipptökuna, þar sem frumkvöðlateymi fá fræðslu og leiðsögn við að þróa viðskiptahugmyndir sínar á vinnustofum. Að þeim loknum geta valin verkefni komist áfram í Hlunninn (e. incubator), þar sem þau fá markvissan stuðning við áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækja sinna til lengri tíma, meðal annars í formi fjárfestinga, ráðgjafar, leiðsagnar og aðgangs að sérfræðiþekkingu og tengslaneti Driftar EA.
Driftarar gegna mikilvægu hlutverki í stuðningi Driftar EA við frumkvöðla. Að lokinni Slipptöku, velur stjórn Driftar þau verkefni sem fá áframhaldandi stuðning í Hlunninum. Við valið leitar stjórnin einnig álits til Driftara, sem leggja mat á verkefnin út frá ólíkri fagþekkingu og reynslu.
Núverandi hópur Driftara samanstendur af KPMG, Enor, Eflu, Deloitte, Geimstofunni, COWI, Komplíment markaðs- og ráðgjafastofu og Háskólanum á Akureyri, auk Ingólfs sem bætist nú í hópinn.
„Driftararnir búa yfir gríðarlega fjölbreyttri og ólíkri sérþekkingu og geta þau því lagt mat á verkefnin frá mismunandi hliðum. Það hjálpar okkur að greina styrkleika þeirra og þau tækifæri sem felast í áframhaldandi þróun þeirra,“ segir Sesselja Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastýra Driftar EA.
Samstarfið einskorðast þó ekki við val á verkefnum. Driftarar eru einnig paraðir saman við frumkvöðlateymi í Hlunninum og taka reglulega stöðufundi með þeim, ásamt Hreini Þór Haukssyni, leiðtoga frumkvöðla og fjárfestinga hjá Drift EA. Þar fá frumkvöðlar tækifæri til að leita ráða, ræða áskoranir og nýta sér reynslu og tengsl samstarfsaðila við uppbyggingu fyrirtækja sinna.
Þekkingu miðlað til atvinnulífsins
Driftarar taka jafnframt þátt í að miðla þekkingu og reynslu til breiðari hóps með reglulegum innblásturserindum í Drift EA. Erindin eru hagnýt og fræðandi og ætlað að nýtast bæði frumkvöðlum jafnt sem fyrirtækjum í atvinnulífinu.
Með þessum fjölbreytta hóp sérfræðinga vill Drift EA styrkja tengsl nýsköpunar og atvinnulífs, auðvelda frumkvöðlum aðgengi að sérhæfðri þekkingu og skapa betri forsendur fyrir þróun hugmynda í sjálfbær og verðmæt fyrirtæki á Norðurlandi.
Frá þessu segir i tilkynningu