Miðgarður vígður – yngsti og elsti nemandinn klipptu á borðann

Nemendur Borgarhólsskóla, sá yngsti og elsti sáu um að klippa á borðann. Mynd/epe
Nemendur Borgarhólsskóla, sá yngsti og elsti sáu um að klippa á borðann. Mynd/epe

Nýtt hús frístundar og félagsmiðstöðvar við Borgarhólsskóla á Húsavík var vígt í dag, 15. október. Húsið fékk nafnið Miðgarður og voru það yngsti og elsti nemandi skólans sem klipptu á borðann við athöfnina.

Starfsemi frístundar hófst í húsinu í gær, 14. október. Gert er ráð fyrir að allt að 120 börn nýti frístundina, auk þess sem allir nemendur í 5.–10. bekk geta sótt félagsmiðstöðina. Enn á eftir að staðfesta hvenær starfsemi félagsmiðstöðvarinnar hefst í nýja húsnæðinu.

Jón Höskuldsson, sviðstjóri velferðarsviðs Norðurþings, og Þórgunnur R. Vigfúsdóttir, skólastjóri Borgarhólsskóla, segja nýja húsið marka mikil tímamót. Þau svöruðu fyrirspurn Vikublaðsins sameiginlega.

„Mesta breytingin felst í því að nú fær bæði frístundin og félagsmiðstöðin loksins húsnæði sem er sérstaklega hannað og byggt með starfsemina og þarfir barnanna og unglinganna í huga.“

Undanfarin ár hafi starfsemin þurft að laga sig að húsnæði sem var ekki upphaflega ætlað henni. Með nýja húsinu skapist betri aðstæður til að þróa fjölbreytt og skapandi starf og mæta ólíkum áhugasviðum og þörfum barna og unglinga.

Þau nefna einnig góða lýsingu, vandaða hljóðvist og betri loftgæði sem mikilvæga þætti fyrir líðan þeirra sem dvelja í húsinu. Innangengt er úr Borgarhólsskóla, sem opnar möguleika á auknu samstarfi og samnýtingu húsnæðis, búnaðar og skólalóðar.

Tvær hæðir og sveigjanleg nýting

Helena Eydís Ingólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar Norðurþings ávarpaði gesti. Myndir/epe

 Frístundin verður aðallega á efri hæð hússins en félagsmiðstöðin á þeirri neðri. Þar sem starfsemin fer að mestu fram á mismunandi tímum verður þó hægt að nýta húsið í heild fyrir hvora starfsemi þegar þörf krefur.

Að sögn Jóns og Þórgunnar gefur það færi á stærri viðburðum, fjölbreyttari verkefnum og samveru sem síður rúmast í afmarkaðri aðstöðu.

„Markmiðið er að húsið nýtist sem best og verði lifandi, hlýlegur og öruggur staður þar sem börn og unglingar finna að þau eru velkomin.“

Miðgarður varð fyrir valinu í kosningu nemenda

Börn og unglingar komu að ferlinu, meðal annars með þátttöku í nafnavali hússins. Íbúum og nemendum Borgarhólsskóla var boðið að senda inn hugmyndir og voru þrjú nöfn valin úr tillögunum. Nemendur Borgarhólsskóla og Framhaldsskólans á Húsavík fengu síðan að kjósa um nafnið.

Jón og Þórgunnur segja þátttökuna mikilvæga enda sé húsið fyrst og fremst vettvangur barnanna og unglinganna. Vonin sé að með áhrifum á nafnavalið myndist strax sterkari tenging við húsið og tilfinning fyrir hlutdeild í því.

Endanlegur kostnaður við verkefnið liggur ekki fyrir. Þá á enn eftir að staðfesta hvenær starfsemi félagsmiðstöðvarinnar hefst í nýja húsinu.

Þau segja aðstöðuna fela í sér betri og heildstæðari þjónustu við fjölskyldur á Húsavík og gefa starfsfólki aukna möguleika á að mæta börnum og unglingum á þeirra eigin forsendum.

„Um leið sendir samfélagið skýr skilaboð um að það meti börn og unglinga, hlusti á þau og vilji skapa þeim góð skilyrði til að vaxa, dafna og njóta sín.“

Nýjast