Meint óviðeigandi framkomu starfsmanns á Tröllaborgum haustið 2024 tekin upp að nýju
Akureyrarbær hefur ákveðið að fara yfir verklag sitt og innri ferla vegna máls sem kom til kasta lögreglu haustið 2024 og lýtur að meintri óviðeigandi framkomu starfsmanns á leikskólanum Tröllaborgum gagnvart barni í skólanum. Starfsmanni var vikið frá störfum í kjölfar þess að málið kom upp. Málið var á sínum tíma rannsakað af lögreglu en látið niður falla. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akureyrarbæ.