Opinn fundur um vestnorrænt samstarf á Amtsbókasafninu Uppfært!
Norræna félagið á Norðurlandi býður almenningi á opinn kynningarfund um starfsemi Vestnorræna ráðsins í dag miðvikudag 2. september kl. 17:00 á Amtsbókasafninu á Akureyri.
Norræna félagið á Norðurlandi býður almenningi á opinn kynningarfund um starfsemi Vestnorræna ráðsins í dag miðvikudag 2. september kl. 17:00 á Amtsbókasafninu á Akureyri.
Það er kominn tími til að stjórnmálamenn hætti að tala um eldri borgara sem einsleitan hóp. Eldri borgarar eru fjölmennur og fjölbreyttur hópur. Sumir hafa góðar tekjur og búa við ágæt kjör. Aðrir þurfa að snúa hverri krónu við og hafa verulegar áhyggjur af því hvernig þeir ná endum saman.
Bæjarráð Fjallabyggðar samþykkti samhljóða á fundi ráðsins þann 27 ágúst s.l. að skora á ríkisstjórn og Alþingi að koma upp fastri starfsstöð fyrir þyrlu Landhelgisgæslu Íslands á Akureyri.
Niðurstöður nýrrar rannsóknar, sem unnin var með þátttöku starfsfólks Sjúkrahússins á Akureyri (SAk), benda til þess að kæfisvefn hjá börnum geti mælst talsvert mismunandi frá einni nóttu til annarrar. Niðurstöðurnar vekja athygli á því að mæling yfir eina nótt gefur ekki alltaf nægilega góða mynd af alvarleika kæfisvefns hjá einstaka barni.
Fyrsti viðtalstími bæjarfulltrúa á Akureyri verður á Amtsbókasafninu á Akureyri 22. september 2026.
Í málefnasamningi meirihluta bæjarstjórnar Akureyrar kemur fram það markmið að endurvekja viðtalstíma bæjarfulltrúa og efla samráð við íbúa og fyrirtæki.
Lagt er til í minnisblað um fyrirkomulag viðtalstíma bæjarfulltrúa að þeir verði haldnir fjórða þriðjudag hvers mánaðar frá klukkan 16:00 til 17:30 og a.m.k tveir bæjarfulltrúar verði til viðtals hverju sinni, einn frá meirihluta og einn frá minnihluta.
Hildur hefur yfir tíu ára reynslu af stjórnun, stefnumótun, nýsköpun, verkefnastjórnun og stjórnun verkefnasafna, einkum innan orku- og innviðageirans. Hún hefur á ferli sínum leitt fjölbreytt þróunar- og umbótaverkefni, stýrt teymum og unnið að því að þróa hugmyndir og koma þeim í framkvæmd.
Sveitarstjórn Norðurþings samþykkti samhljóða á fundi sínum á fimmtudag að stefnt verði að því að endurbætur á stjórnsýsluhúsinu að Ketilsbraut 7–9 hefjist árið 2027.
Vinnsla hófst á ný hjá Útgerðarfélagi Akureyringa í síðustu viku eftir sumarleyfi og þar með er landvinnsla Samherja komin aftur á fullt skrið.
Hún var ekki skemmtileg aðkoman fyrir starfsmenn GHjálmarssonar þegar þeir mættu til vinnu sinnar í Móahverfi í morgun.
Það hefur ítrekað komið fram að VMA býr við mikinn húsnæðisvanda. Skólinn er þétt setinn og því þarf að kenna nokkra áfanga í þröngum og ófullnægjandi rýmum.
Norræna félagið á Norðurlandi býður almenningi á opinn kynningarfund um starfsemi Vestnorræna ráðsins miðvikudaginn 2. september kl. 17:00 á Amtsbókasafninu á Akureyri.
Akureyrarvaka fór fram um liðna helgi og lukkaðist vel, fjölmargir viðburðir voru í boði um vítt og breytt um bæinn og lét fólk sig ekki vanta þó vissulega hefði vel mátt vera aðeins hlýrra þegar líða tók á.
Hilmar Friðjónsson var á ferð og flugi með myndavélar sínar og hann tók myndinar sem hér fylgja.
Tekjur atNorth ehf., sem heldur utan um starfsemi atNorth á Íslandi, námu 72,3 milljónum Bandaríkjadala árið 2025 og jukust um rúm 96 prósent frá fyrra ári. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 25,9 milljónum dala, samanborið við 2,3 milljónir dala árið 2024. Reksturinn skilaði jafnframt jákvæðri EBIT afkomu upp á 6,1 milljón dala eftir 13 milljóna dala tap árið áður.
– Um 30 félög og samtök kynna starfsemi sína á opnu húsi
À haustin falla til haustverkin. Þau geta verið ýmiskonar. Á meðan sumir ná síðustu tuggunum í rúllur, gera klárt fyrir að setja fé á hús, smala og rétta taka aðrir upp uppskeru sumarsins, misgóða eins og gerist og gengur. Sumir fara í berjamó og á meðan sumir njóta þess að tína upp í sig eru aðrir sem tína kílóavís. Kennarar gera klárt fyrri komandi vetur, námsáætlanir og hina ýmsu lista sem verða jú að liggja fyrir. Og foreldrar yfirfara innkaupalista skóladóts og útifatnað barna. Allt þarf jú að vera klárt fyrir komandi vetur!
Nýtt norrænt samstarf í iðjuvísindum hefur skapað mikilvægan grunn fyrir eflingu framhaldsnáms í iðjuþjálfun á Íslandi. Með þátttöku Háskólans á Akureyri í verkefninu OSNord stendur nú bæði stúdentum og starfandi iðjuþjálfum til boða aukið framboð námskeiða á meistarastigi og ný tækifæri til alþjóðlegrar samvinnu.
Um eitt hundrað manns komu saman við Skautahöllina á Akureyri fyrir viku og gengu eða hlupu til stuðnings hlaupurum Reykjavíkurmaraþonsins til minningar og áheita í málstað Sólveigar Huldu og barnabarns hennar litlu Sólveigar Huldu.
Í vélstjórnarnáminu í VMA á árunum 2009-2012 heillaðist Samúel Örn Pétursson (f. 1993) af skemmtiferðaskipunum sem komu hvert á fætur öðru til Akureyrar og hann dreymdi þá um að síðar á lífsleiðinni myndi hann verða í brúnni á skemmtiferðaskipi. Sá draumur rættist rúmum áratug síðar.
„Þetta er vissulega högg fyrir skólastarfið og setur ákveðið strik í reikninginn, en við verðum bara að sníða okkur stakk eftir vexti og við erum góð i þvi,“ segir Valdimar Heiðar Valsson skólastjóri í Hlíðarskóla. Mygla kom í ljós í eldhúsi í einu af þremur húsum sem skólinn hefur til umráða á miðvikudag í liðinni viku. Skólastarf hófst nú síðastliðinn mánudag.
Viðræður eru hafnar milli stéttarfélagsins Framsýnar og Fjallalambs hf. um kaup og kjör starfsmanna í sláturhúsi fyrirtækisins fyrir haustvertíðina. Stefnt er að því að klára samninga áður en sláturtíð hefst í byrjun september.
Nú er hægt að ferðast með almenningssamgöngum frá Akureyri og áfram til Hríseyjar með tengingu milli strætóleiðar 78 og Hríseyjarferjunnar. Þetta auðveldar bæði íbúum og gestum að komast til og frá eyjunni án þess að vera á eigin bíl.
-Alls hefja 286 nemendur skólaárið – þar af 34 nemendur í 1. bekk
Í ár fögnum við 164 ára afmæli Akureyrarbæjar sem hefur í gegnum árin þróast frá því að vera lítið verslunarþorp yfir í öflugt og fjölbreytt samfélag sem veitir þjónustu langt út fyrir bæjarmörkin.
Á Akureyrarvöku verður afmæli Akureyrarbæjar fagnað með litríkri menningardagskrá frá föstudegi fram á laugardagskvöld. Liðlega hundrað viðburðir af öllum
stærðum og gerðum eru í boði.
Nýtt leikár Leikfélags Akureyrar hófst á fyrsta samlestri á Fasteignamartröðinni, bráðfyndnu samtímaverki eftir litháenska leikskáldið Gabrielé Labanauskaitė.
Verkið var valið besta erlenda leikritið í Þýskalandi árið 2021.
Barnaheill – Save the Children á Íslandi hófu árlega haustsöfnun sína í gær, fimmtudaginn 27. ágúst, með sölu á vönduðum spilastokki sem var unninn í samvinnu við Rán Flygenring með myndum úr verki hennar Vigdís: Bókin um fyrsta konuforsetann.
Heimahöfn háskólakennslu, sem er samstarfsverkefni allra háskóla landsins og hefur það að markmiði að efla hæfni í háskólakennslu og styðja við faglega þróun kennara, var opnuð formlega af Loga Einarssyni menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra mánudaginn 17. ágúst síðastliðinn.