Ekki ég!
Það er hrollvekjandi að hugsa til þess að á að minnsta kosti 45 árum hafi lítið sem ekkert breyst þegar kemur að umönnun aldraða og hinum svokallaða „fráflæðisvanda“ sem annars er skelfilegt orð.
Það er hrollvekjandi að hugsa til þess að á að minnsta kosti 45 árum hafi lítið sem ekkert breyst þegar kemur að umönnun aldraða og hinum svokallaða „fráflæðisvanda“ sem annars er skelfilegt orð.
Þrek og tár, eitt af ástsælustu verkum Ólafs Hauks Símonarsonar verður á fjölunum hjá leikdeild Umf. Eflingar á Breiðumýri í vetur. Leikstjóri er María Pálsdóttir og tónlistarstjóri Pétur Ingólfsson.
Á fundi skipulagsráðs í gær var lögð fram tillaga frá Zeppelin arkitektum f.h SS Byggis að uppbyggingu við Hofsbót 1-3.
Alls nýttu 2.679 börn og ungmenni á aldrinum 6–17 ára frístundastyrk Akureyrarbæjar á árinu 2025, sem samsvarar 85,8% allra barna í þessum aldurshópi í bænum.
Tíðarfarið á Norðausturlandi hefur verið með besta móti undanfarið, snjólétt og stillt.
Franska kvikmyndahátíðin á Akureyri hófst á þriðjudag, 10. febrúar og stendur til 15. febrúar. Hún fer fram í Sambíóunum á Akureyri, Amtsbókasafninu á Akureyri og á Listasafninu á Akureyri.
Hildur Halldórsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Þekkingarnets Þingeyinga og tekur við starfinu í apríl. Hún kemur til starfa með víðtæka reynslu úr nýsköpun, menningu og skapandi greinum, þjónustu, rannsóknum og menntun.
Verðlaun fyrir smásögusamkeppni Félags enskukennara á Íslandi (FEKÍ) voru afhent með pompi og prakt síðdegis í gær í Veröld - húsi Vigdísar. Athöfnin var haldin í samstarfi við Breska sendiráðið og Vigdísarstofu og kom það í hlut sendiherra Breta á Íslandi, Dr. Bryony Mathew, að afhenda verðlaunin.
Í gær fór fram vel sóttur kynningarfundur um þróun listnáms á háskólastigi á Akureyri í samstarfi Háskólans á Akureyri (HA) og Listaháskóla Íslands (LHÍ). Fundurinn vakti töluverðan áhuga og sköpuðust líflegar og gagnlegar umræður um markmið verkefnisins, fyrirkomulag og framtíðarmöguleika listnáms á Norðurlandi.
Hlutfall eldri borgara á Íslandi fer vaxandi og er nú um 15% þjóðarinnar. Eldra fólk er líklegra til að glíma við langvinna sjúkdóma og hrumleika, en regluleg hreyfing, lítil streita, góð næring og gott heilsulæsi stuðlar að betri heilsu og sjálfstæði á efri árum.
Tónlistarskólinn á Akureyri fagnaði 80 ára afmæli sínu með glæsilegri hátíð í Hofi síðasta laugardag. Við það tilefni Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður stéttarfélagsins Kjalar, skólanum veglega peningagjöf.
Guðmundur Vilhjálmsson eigandi og framkvæmdastjóri Garðvíkur á Húsavík er ekki af baki dottinn þó á móti blási
Undanfarnar vikur hafa verið annasamar hjá okkur sem lifum og hrærumst í menntamálum. Nýr ráherra málaflokksins kom inn með miklum látum. Allt í einu var skollið á þriðja læsistríðið, sleggja hafði verið reidd til höggs og henni beint að meintum sökudólgum. Svo virtist sem finna ætti einfalda lausn á afar flóknu viðfangsefni. Ef það er það besta sem ráðherra getur gert, þá er það ekki nógu gott!
Nemendur í kvöldskóla í húsasmíði við Verkmenntaskólann á Akureyri eru nú á vorönn að smíða timburhús, líkt og dagskólanemar. Munurinn er þó sá að kvöldskólanemar byggja þjónustuhús þar sem verða salerni, handlaugar og sturtuaðstaða en dagskólanemendur smíða þrjú frístundahús fyrir tjaldsvæðið á Hömrum. Þjónustuhúsinu, sem kvöldskólanemarnir eru nú komnir í fullan gang með að smíða, verður komið fyrir við einkatjaldsvæði á jörðinni Ytri-Á á Kleifum í Ólafsfirði, segir á vef VMA.
Norðurþing og Völsungur undirrituðu á dögunum nýjan samstarfssamning til næstu þriggja ára sem tryggir áframhaldandi stuðning við öflugt íþróttastarf í sveitarfélaginu.
Norðurþing og Minjastofnun Íslands hafa gengið frá samkomulagi um skráningu fornleifa í Norðurþingi.
Tilboð voru opnuð í byggingu nýs hjúkrunarheimilis á Húsavík á mánudag. Tilboð bárust frá fjórum aðilum: Eik fasteignafélagi, Pekron ehf., Reitir atvinnuhúsnæði og Þingvangi ehf.
Það er gömul saga og ný að það er ómetanlegt fyrir VMA að eiga góða að sem vilja leggja honum lið og styðja við nám nemenda.
Bálför Guðmundar Odds Magnússonar listamanns og grafísks hönnuðar fer fram í dag, 9. febrúar. Hann lést í bílslysi 3. janúar síðastliðinn. Goddur var nemandi við Menntaskólann á Akureyri í upphafi áttunda áratugarins áður en hann hóf nám við Handíða- og Myndlistaskóla Íslands.
Hversu ólíkt var lífsstrit, örlög og líf formæðra okkar samanborðið við líf okkar í dag. Langamma mín, Emilía Sigurgeirsdóttir fæddist í Uppibæ, Flatey, Skjálfanda, 30. janúar 1903 fyrir 123 árum síðan, hún lést 15. desember 2000. Hún var dóttir hjónanna Halldóru Guðmundsdóttur frá Brettingsstöðum, Flateyjardal og Sigurgeirs Sigurðssonar, Uppibæ, Flatey, Skjálfanda.
„Árið kom í heildina nokkuð vel út og var niðurstaðan í samræmi við þær væntingar sem gerðar höfðu verið í upphafi árs,“ segir Pétur Ólafsson hafnarstjóri hjá Hafnasamlagi Norðurlands.
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Akureyri kom saman á röðunarfundi í Naustaskóla í gær og kaus í fjögur efstu sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí nk.
Fyrsta sundlaugin sem byggð var á Akureyri og sennilega á þeim stað sem Sundlaug Akureyrar er nú, var gerð árið 1897, með torffyrirhleðslu í læk sem rann um Grófargil. Hún var styrkt og stækkuð 1936 og enn frekar 1956 þegar innilaug í kjallara var opnuð sem kennslulaug. 1994 og svo aftur 1998/99 var farið í endurbætur á sundlauginni, fyrst voru rennibrautir, pottar og eimböð sett upp eða löguð og í seinni lotunni var annarri útilaug bætt við
Framkvæmdir viðnýja göngubrú yfir Glerár á móts við Glerártorg hefjast nú í febrúar. Umhverfis- og mannvirkjaráð hefur sótt um framkvæmdaleyfi og skipulagsfulltrúa verið falið að gefa það út þegar fullnægjandi gögn hafa borist. Jafnframt því sem göngubrúin verður reist verða framkvæmdir við nýja jöfnunarstöð fyrir strætó á þessum slóðum. Samið hefur verið við SS-Byggi um smíði brúarinnar.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar tekur undir áhyggjur atvinnu-og nýsköpunarnefndar varðandi fjarskiptasamband í sveitarfélaginu.
Velferðarráð Akureyrar leggur til að farið verði í það verkefni að skoða eignasafn félagslegra leiguíbúða með sölu óhagkvæmra eigna í huga, mikilvægt er að koma til móts við þá sem hafa verið hvað lengst á biðlista. Sviðsstjóra var falið að vinna að því ásamt sviðsstjóra UMSA og fjármálastjóra.
Fimmtudaginn 5. febrúar, fór fram afhending á styrkjum Norðurorku til samfélagsverkefna vegna ársins 2026. Athöfnin fór fram í Menningarhúsinu Hofi, sem er vel við hæfi þar sem Norðurorka er bakhjarl Menningarfélagsins.