Tíðarfarið á Norðausturlandi hefur verið með besta móti undanfarið, snjólétt og stillt.
Þó enn sé langt til vorsins er sólin samt farin að hækka á lofti og þá getur verið gaman að viðra kindurnar.
Á Húsavík eru frístundabændur með fallegt fé og þar er samfélag manna og dýra með miklum ágætum.
Ekki er að sjá annað en að ærnar kunni vel að meta útivistina. Sumar eru mjög mannblendnar og gáfu þær ljósmyndaranum gaum er hann átti leið hjá í vikunni.
