Sagan er byggð á raunverulegum atburðum frá desember 1925, þegar Benedikt, Eitill og Leó lentu í miklum hrakningum á Mývatnsöræfum. Ferðin varð Gunnari Gunnarssyni innblástur að Aðventu.
Laugardaginn 28. nóvember kl. 13 lifna við í Davíðshúsi Fjalla-Bensi, Eitill og Leó þegar Norðangarri flytur Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson. Sagan verður lesin í heild sinni við lifandi tónlist og hljóðheim sem verður til á staðnum. Stemning í anda gömlu húslestranna í stofunni í Davíðshúsi.
Norðangarra skipa Erla Dóra Vogler, söng- og leikkona, Þórður Sigurðarson, píanóleikari, og Jón Þórsteinn Reynisson, harmonikkuleikari. Flutningurinn tekur um 2,5 klukkustund. Takið gjarnan handavinnu með ykkur!
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.
Styrktaraðilar:
Örvar, styrktarsjóður menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins
Menningarsjóður Akureyrarbæjar
Norðurorka
Gistihúsið Egilsstöðum
Frú Nielsen