Boðið verður til birkistundar næsta laugardag í eldaskálanum í Vaglaskógi. Tilefnið er útgáfa bókarinnar BirkiVist – BirkiVera: Birki í menningu, listum og lífinu. Eldaskálinn verður kominn í notalegan jólabúning og boðið verður upp á birkidrykki, ketilkaffi og aðrar léttar veitingar.
Eftir birkihugleiðslu undir leiðsögn Þuríðar Helgu Kristjánsdóttur mun skógarvörðurinn Helga Ösp Jónsdóttir tala um birki sem meira en bara tré. Auður Aðalsteinsdóttir, annar ritstjóri bókarinnar, les upp úr henni um menningarlegt gildi birkis og gestir munu fá að heyra tónlist Svavars Knúts um birki.
Greinasafnið BirkiVist – BirkiVera leiðir lesendur inn í þann menningarheim sem samvist birkis og mannfólks á Íslandi hefur skapað. Í bókinni er fjallað um fagurferðilegt, menningarlegt og samfélagslegt gildi birkis frá fjölbreyttum sjónarhornum. Fjallað er um birki í list og hönnun, birtingarmyndir birkis í bókmenntum, upplifun fólks af því að dvelja í birkiskógum og þverfaglega rannsóknar- og þróunarverkefnið BirkiVist.
BirkiVist – BirkiVera er annað bindi ritraðarinnar Huldurit þar sem birtar eru niðurstöður rannsókna á sviði umhverfishugvísinda. Ritin eru innlegg í samtímaumræðu um tengsl manns og náttúru á tímum loftslagsvanda og taps á líffræðilegum fjölbreytileika.
Útgefandi er Rannsóknasetur Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit og Hulda náttúruhugvísindasetur.
Sjá nánar: https://haskolautgafan.is/products/birkivist-birkivera-birki-i-menningu-listum-og-lifinu?taxon_id=7