Talaðu niður atvinnugreinina. Hækkaðu svo skatta

Gunnar Már Gunnarsson, bæjarfulltrúi Framsóknar á Akureyri
Gunnar Már Gunnarsson, bæjarfulltrúi Framsóknar á Akureyri

Tíu milljarðar. Svo mikla skattahækkun á ferðaþjónustuna boðar ríkisstjórnin í fjárlögum fyrir árið 2027. Meltið það. Í fyrra var 20 milljarða kr. framlegð í greininni. Helmingurinn á nú að fara í nýja skattstofna. Er nema von að ferðaþjónustan láti í sér heyra? Þegar svona er seilst, þá má ekki mikið út af bera til þess að halla fari undan fæti.

Stjórnarliðar segja eðlilegt að ferðamenn leggi sitt af mörkum þegar þeir heimsækja fámennt land. Ég er því ekki ósammála. En fyrst verða þeir að koma. Ferðamenn hafa úr mörgum áfangastöðum að velja. Hvað telur ríkisstjórnin að gerist þegar það verður dýrara að velja Ísland?

Skref 1: Talaðu niður ferðaþjónustuna

Hefur ríkisstjórnin talað niður ferðaþjónustuna? Já. Frá upphafi, raunar.

Þegar hún kynnti nýja atvinnustefnu sína í vor þá talaði hún mjög niður árangur Íslands síðustu ára í efnahagsmálum. Með því að einblína á þróun hagvaxtar á mann var hægt að mála dekkri mynd, og það þótt hagvöxtur væri enn töluverður. En fólksfjölgunin var líka töluverð. Helsti sökudólgurinn virtist eiga að vera ferðaþjónustan. Sú mannaflsfreka grein sem hún vissulega er. Skautað var fram hjá mögulegum áhrifum eldgosanna á Reykjanesi. Einnig var skautað framhjá mýmörgum jákvæðum áhrifum ferðaþjónustunnar, sem svo sannarlega hefði mátt gera að umtalsefni. Margfeldisáhrif ferðaþjónustannar eru nefnilega veruleg. Þau eru bæði áþreifanleg í hagtölum en ekki síður áþreifanleg hvert sem við förum. Jafnvel mætti halda því fram að ferðaþjónustan sé ein mikilvægasta lyftistöng íslenskrar byggðastefnu. Hún á stóran þátt í að skapa skilyrði fyrir blómlega byggð víða um land, sem við Íslendingar kunnum ekki síður að meta þegar við ferðumst um landið.

Ferðaþjónustan skapar gjaldeyristekjur sem hafa skipt sköpum fyrir litla hagkerfið okkar þar sem gjaldeyristekjur voru lengi mjög háðar sjávarútvegi. Árið 2025 námu útgjöld erlendra ferðamanna hér á landi rúmlega 540 milljörðum króna. Ferðaþjónustan bætir þannig við öflugri útflutningsstoð, samhliða sjávarútvegi og stóriðju og svo hugverkaiðnaði í dag. Hún hefur því gert íslenska hagkerfið fjölbreyttara. Það verður seint hægt að ofmeta gildi þessa.

Ferðaþjónustan skapar einnig atvinnu um allt land. Um 9,5% allra vinnustunda á Íslandi árið 2025 mátti rekja beint til ferðaþjónustu. Margvísleg störf sem verða ekki bara til á hótelum og veitingastöðum heldur líka í flugi, bílaleigum, verslun, ferðaþjónustufyrirtækjum og ýmiss konar afþreyingu. Þetta er sérstaklega mikilvægt víða á landsbyggðinni, þar sem möguleikar á fjölbreyttri atvinnustarfsemi geta verið takmarkaðri. Ungt fólk á Íslandi hefur hingað til ekki verið í miklum vandræðum með að fá vinnu og það er nú meira en lítið verðmætt!

Þá er vert að minnast á að ferðaþjónustan skapar lífsgæði sem fólkið okkar kann að meta. Allskyns þjónusta og viðburðir og skemmtilegheit sem hafa ekki alltaf verið sjálfsögð, sérstaklega ekki á fámennari svæðum.

Skref 2: Skattlegðu þig út af markaðnum

Auðvitað er mikilvægt að finna sanngjarna leið til að dreifa skattbyrðinni og fjármagna þannig verkefnin. Um það snúast jú stjórnmál eins og við þekkjum þau, eða eiga að snúast um það. Að hækka skatta er samt aldrei léttvæg ákvörðun og á ekki að vera sjálfsögð.

Meiri kostnaður og hærri verð er ekki hvetjandi í neinum rekstri og ekki uppskriftin að aukinni eftirspurn. Sérstaklega þegar fyrirvari hækkunar er nær enginn og ákvörðun tekin án samtals við eina mikilvægustu atvinnugrein landsins. Miklar skattahækkanir með skömmum fyrirvara geta bitið ferðaþjónustufyrirtæki sérstaklega illa. Aðilar í ferðaþjónustu hafa oft selt ferðir og þjónustu langt fram í tímann. Þegar skattar hækka mikið með skömmum fyrirvara þá lendir kostnaðurinn því á fyrirtækjunum sjálfum. Þess vegna skiptir góður fyrirvari sköpum þegar skattar á ferðaþjónustuna eru hækkaðir.

Áður en stjórnvöld ákveða að hækka að skatta þá ættu þau einnig að íhuga það gaumgæfilega hvort áfram sé tryggt að við getum nýtt þær fjárfestingar sem við höfum ráðist í. Tóm hótelherbergi skila engum ábata til samfélagsins. Ónýtt bílastæði eru bara til óþurftar. Það er sokkinn kostnaður sem er engum til gagns.

Því það er svo sannarlega hægt að skattleggja sig út af markaðnum.

Gríðarlegar fjárfestingar sem skila sér til sveitarfélaganna

Ferðaþjónustan er að skila verulegum tekjum til sveitarfélaga víða um land í formi útsvars og fasteignagjalda. Akureyri og Norðurland eru þar engin undantekning. Við erum að sjá fordæmalausa uppbyggingu á svæðinu sem hefur varla farið framhjá neinum.

Hér hefur risið glæsilegt nýtt hótel, Skáld hótel, með samtals yfir 70 herbergi og 15 íbúðir. Hótel Akureyri hefur nærri tvöfaldað sitt framboð með metnaðarfullri uppbyggingu. Á næstu misserum mun nýtt hótel opna við Skógarböðin, með 120 herbergi og góðri fundaraðstöðu. Hótelið við Höfða, Grenivík, opnar haustið 2027. Uppbygging fyrirhuguð á Hauganesi, í tengslum við fjöruböðin, og á Árskógssandi í tengslum við Bjórböðin. Jarðböðin í Mývatnssveit hafa fengið stórkostlega andlitslyftingu. Svo eru það öll minni verkefnin. Þegar kemur að afþreyingu þá stendur til að setja upp sleðabraut í Hlíðarfjalli. Á Raufarhöfn er unnið að því að opna setur fyrir æðarfugl. Það á að setja upp nýjar hjólaleiðir í kringum Grenivík. Við getum horft vestur líka. Ýmislegt á döfinni í Víðidal og í Víðigerði er nú hægt að gista í skemmtilegum kúluhúsum. Og svo framvegis. Og svo framvegis.

Tölum því ekki niður ferðaþjónustuna. Tölum heldur ekki niður seigluna sem býr í atvinnulífinu hér norðan heiða. Tölum Ísland ekki niður.

Atvinnuuppbygging er undirstaða velferðar í landinu. Við verðum að tryggja störf um allt land til að vaxa og standa undir velferðinni. Tölum því frekar atvinnuuppbyggingu upp.

 

Gunnar Már Gunnarsson, bæjarfulltrúi Framsóknar á Akureyri

Nýjast