Kafli úr bókinni Þér eruð ekki neitt, fröken Sigríður! sem Sigrún Hildur Kristjánsdóttur er að senda frá sér. Bókaforlagið Hólar gefur út.
Sigríður Ólafsdóttir Meyburg var alþýðustúlka sem fæddist á Ströndum árið 1916 og bjó þar fyrstu æviár sín. Faðir hennar var bóndi sem fór stundum á sjó til að drýgja tekjurnar, en í einni slíkri sjóferð drukknaði hann þegar hann var á togararnum Jóni forseta. Í kjölfarið leystist heimilið upp og Sigríður var send i fóstur. Nokkrum árum síðar flutti Sigríður á ný til móður sinnar sem þá bjó í Reykjavík. Sigríður komst seinna inn í Hjúkrunarkvennaskóla Íslands, þrátt fyrir að það hafi ekki verið sjálfgefið að stúlkur úr alþýðustétt kæmust til mennta á þessu tíma. Hluta af námstímanum dvaldi Sigríður á hinu nýja sjúkrahúsi á Akureyri ásamt því að vinna á Kristneshæli í Eyjafirði í hálft ár, árið 1943. Á Kristneshæli kynntist Sigríður miklu álagi þar sem ungt fólk barðist við alvarleg veikindi og starfið var bæði krefjandi og lærdómsríkt. Þar fékk hún dýrmæta reynslu sem hafði mikil áhrif á hana. Hér á eftir fer kafli úr bókinni sem greinir frá þeim tíma sem hún var hjúkrunarnemi á Akureyri:

Hjúkrunarnemi á Akureyri
Ævintýri á Akureyri.
Það var dásamlegt að dvelja á Akureyri, þeim fallega bæ, sagði Sigríður einatt síðar. Lífið þar snerist þó ekki einvörðungu um nám og vinnu. Hún naut útivistar í fallegu umhverfinu fyrir norðan þegar frítími gafst. Hún var vel á sig komin og hafði unun af að reyna á líkamann. Hún fékk lánuð skíði og skauta og naut þess að stunda þessar skemmtilegu og krefjandi vetraríþróttir. Sigríður eignaðist ágætis kunningja á spítalanum og á Kristneshæli og þar á meðal nána og góða vinkonu sem hét Kristlaug. Þær gengu gjarnan saman um bæinn eða í Lystigarðinn þar sem þær áttu rólegar stundir innan um gróðurinn. Þær fóru einnig öðru hvoru saman út að skemmta sér og dansa, annaðhvort á hinu nýja hóteli Kaupfélags Eyfirðinga, KEA, eða í nýja samkomuhúsinu þar sem Leikfélag Akureyrar hafði aðstöðu.

Vinkonurnar Sigríður og Kristlaug Guðmundsdóttir
Eitthvað var um hermenn á Akureyri á þessum tíma og settu þeir svip sinn á bæjarlífið ásamt bröggunum sem þeim fylgdu. Hernum fylgdi ný menning, ný tónlist og nýir straumar í tísku. Evrópa sjálf var undirlögð af styrjöld og líf fólks þar hafði gjörbreyst síðustu misseri. Allt gekk þar út á að komast af og bjarga sér og sínum frá afleiðingum stríðsins. En þetta virtist allt svo fjarri á þessum tíma á Akureyri þrátt fyrir veru hermanna þar.
Í eitt skipti þegar þær vinkonur áttu frí vorið 1944 þegar Íslendingar voru að undirbúa sjálfstæði sitt, þótt bæri meira á því í Reykjavík, fóru þær saman út að skemmta sér. Það var bjart og fagurt vorkvöld og fuglasöngur í lofti, góð stemning var í bænum og Sigríður naut þess að hlusta á harmóníkuleik tónlistarmannsins sem lék fyrir dansi. Kristlaug, vinkona hennar og samstarfskona á Kristneshæli, vakti athygli hennar á karlmanni nokkrum sem virtist málglaðari en hinir karlarnir í kring og hann var nokkuð ásjálegur að mati þeirra vinkvenna. Sigríður gaf honum gætur í laumi og sá að hann brosti kankvíslega til hennar. Hún tók eftir því að hann steig aldrei dansinn og virtist haltra örlítið þegar hann stóð upp. Þær vinkonur nálguðust smátt og smátt borð þessara manna og brátt tóku þau öll tal saman. Myndarlegi maðurinn kvaðst heita Indriði Pálmason og Sigríður greindi strax sterkan norðlenskan hreim hjá honum. Þau voru öll glöð, reif og skrafhreifin, nutu þess að spjalla saman og þegar líða tók á kvöldið og tími var kominn til að halda heim ákváðu þau að mæla sér mót aftur síðar.
Indriði var ættaður frá Hofi í Arnarneshreppi, sem nú heitir Hörgársveit, skammt frá Akureyri. Foreldrar hans voru Elín Indriðadóttir og Pálmi Magnússon. Hann var elstur í hópi tíu systkina, fæddur árið 1910. Á unglingsárum veiktist Indriði af lömunarveiki sem geisaði á þessum slóðum. Hann náði sér að mestu en bar æ síðan merki veikindanna og haltraði lítillega. Það hafði áhrif á líf hans og starfsvettvang og hann lagði því skrifstofustörf fyrir sig. Hann fór að vinna hjá Kaupfélagi Eyfirðinga um tvítugt og starfaði síðar meðal annars hjá Dalvíkurhreppi en lauk starfsævi sinni á ný hjá KEA.
Indriði var glaðvær og léttur í lund, greindur maður og hagmæltur. Hann hafði gaman af að kveða vísur og kunni ógrynni kvæða og ljóða eftir helstu skáld landsins. Hann var einnig góður sögumaður og hafði yndi af þjóðlegum fróðleik og þjóðsögum, sem vakti strax athygli Sigríðar. Þegar Sigríður kynntist honum betur heillaðist hún af honum, þrátt fyrir að henni fyndist hann stundum örlítið gamaldags í hugsun. Hún sá líka að undir yfirborðinu bjó maður sem gat verið bæði viðkvæmur og skapmikill, þótt hann jafnaði sig yfirleitt fljótt. Fötlunin á fæti hafði þó sett mark sitt á hann, ekki aðeins líkamlega heldur einnig andlega, og stundum skorti hann sjálfstraust þótt hann hefði margt til brunns að bera.
Um sumarið hittust þau nokkrum sinnum þegar færi gafst og smám saman fann Sigríður að hún var orðin hrifin af honum. Hún gat jafnvel hugsað sér að verða húsfreyja á Akureyri en það hafði aldrei hvarflað að henni áður nema síður væri.
Þegar leið á sumarið fór Sigríður þó að finna að hún var ekki alveg eins og hún átti að sér. Örlaganornirnar höfðu spunnið sinn vef og áður en hún vissi af var líf hennar orðið gjörbreytt. Hún óttaðist að hún hefði brennt allar brýr að baki sér, ekki síst gagnvart náminu sem hún hafði lagt svo mikinn metnað í.