Umhverfis- og mannvirkjaráð jákvætt fyrir stækkun Hálanda

Umhverfis- og mannvirkjaráð tekur jákvætt í erindi SS Byggis ehf. um stækkun orlofshúsasvæðisins Hál…
Umhverfis- og mannvirkjaráð tekur jákvætt í erindi SS Byggis ehf. um stækkun orlofshúsasvæðisins Hálanda í Hlíðarfjalli

Umhverfis- og mannvirkjaráð tekur jákvætt í erindi SS Byggis ehf. um stækkun orlofshúsasvæðisins Hálanda í Hlíðarfjalli og telur að ákveðin svæði 10, 11 og 12, henti best til frekari uppbyggingar. Að mati ráðsins er þar lægri trjágróður en á öðrum svæðum innan Græna trefilsins.

Í umsögn ráðsins er jafnframt bent á að aðkoma að svæðinu geti reynst flókin þar sem leggja þyrfti veg um skógræktarsvæði þar sem há lerkitré eru ríkjandi.

Ráðið leggur sérstaka áherslu á að gripið verði til mótvægisaðgerða verði ráðist í framkvæmdir. Lagt er til að tvö ný tré í það minnsta verði gróðursett fyrir hvert tré sem þarf að fella. Leitast verði við að ný tré séu sambærileg að stærð og þau sem fjarlægð eru. Einnig verði heimilt að flytja tré innan svæðisins í stað þess að fella þau.

Málið hefur verið til umfjöllunar hjá skipulagsráði sem frestaði afgreiðslu þar til umsögn umhverfis- og mannvirkjaráðs lægi fyrir. Með umsögninni liggur því fyrir skýr vilji ráðsins um að skoða uppbyggingu á afmörkuðum hluta svæðisins samhliða verndun og endurnýjun gróðurs

Nýjast