Glæsilegum áfanga náð um borð í Northern Osprey III

Á meðfylgjandi mynd má sjá skipið við brottför ásamt hluta af áhöfninni og starfsfólki Slippsins DNG…
Á meðfylgjandi mynd má sjá skipið við brottför ásamt hluta af áhöfninni og starfsfólki Slippsins DNG. Mynd Axel Þórhallsson
Síðastliðinn þriðjudag sigldi kanadíski togarinn MV Northern Osprey III úr höfn frá Akureyri áleiðis til Kanada eftir viðamiklar og farsælar breytingar hjá okkur í Slippnum DNG. Skipinu hefur nú verið breytt úr rækjutogara í fullkomið rækju- og bolfiskveiðiskip með nýrri bolfiskvinnslulínu, en samhliða sinnti Slippurinn Skipaþjónusta viðhaldi um borð.
 
Sögulegar prufuveiðar á Eyjafirði
Áður en skipið hélt af stað fóru fram sögulegar prufuveiðar á Eyjafirði undir eftirliti Fiskistofu – í fyrsta sinn sem erlent fiskveiðiskip fær slíkt leyfi að loknum breytingum í íslenskri skipasmíðastöð.
Verkefnið í heild sinni gekk afar vel og var samstarfið við starfsmenn og áhöfn Northern Osprey alveg frábært. Stór verkefni sem þessi eru sem betur fer reglulegur hluti af starfseminni hjá okkur í Slippnum Akureyri og þá er ómetanlegt að geta treyst á það öfluga net iðnaðar- og þjónustufyrirtækja sem við eigum hér á Eyjafjarðarsvæðinu – og að sjálfsögðu utan þess. Slík samvinna skiptir sköpum og hefur jákvæð margfeldisáhrif á allt viðskiptalífið á svæðinu. Á meðfylgjandi mynd má sjá skipið við brottför ásamt hluta af áhöfninni og starfsfólki Slippsins DNG.
 
Við þökkum okkar frábæra starfsfólki hjá Slippnum DNG fyrir góða frammistöðu í verkefninu, sem og útgerðinni, áhöfninni og þeim fjölmörgu aðilum á Eyjafjarðarsvæðinu og víðar kærlega fyrir traustið og samstarfið – og óskum áhöfninni farsælla veiða á norðlægum slóðum!
 
Frá þessu segir á samfélagsmiðlum Slippsins DNG

Nýjast