TDK skoðar stækkun í Krossanesi og mögulega tvöföldun framleiðslu

Bárufell nær og sjálft  fréttaefnið verksmiðja TDK í Krossanesi fjær
Bárufell nær og sjálft fréttaefnið verksmiðja TDK í Krossanesi fjær

TDK Foil Iceland ehf. í Krossanesi á Akureyri hefur hafið undirbúning að umfangsmikilli athugun á mögulegri stækkun verksmiðjunnar. Til skoðunar er verkefni sem gæti tvöfaldað framleiðslugetu fyrirtækisins.

Í bréfi til skipulagsráðs kemur fram að eigendur og stjórnendur fyrirtækisins séu að meta hagkvæmni þess að ráðast í uppbygginguna. Ástæðan er meðal annars sú að ný kynslóð framleiðslubúnaðar sem fyrirtækið hefur áform um að fjárfesta í krefst mun stærra húsnæðis en núverandi verksmiðja ræður við.

Fyrirtækið hefur þegar látið vinna bráðabirgðaáætlun um nauðsynlega stærð nýrrar byggingar og sýnir frumathugun að verulega þröngt gæti orðið um starfsemina, m.a. meðal annars vegna nálægðar við Krossanesbraut.

TDK óskar eftir fundi með skipulagsyfirvöldum Akureyrarbæjar til að ræða möguleika á framtíðaruppbyggingu á lóð fyrirtækisins og næsta skref í skipulagsmálum.

Eigendur verksmiðjunnar stefna að því að taka ákvörðun á næstu mánuðum um hvort haldið verði áfram með verkefnið.

Nýjast