Verðlaunaður málmblásarakvintett leikur í Akureyrarkirkju

Málmblásarakvintettinn  North Atlantic Brass leikur í  Akureyrarkirkju annað kvöld. Hann er skipaður…
Málmblásarakvintettinn North Atlantic Brass leikur í Akureyrarkirkju annað kvöld. Hann er skipaður ungum tónlistarmönnum frá Íslandi, Danmörku og Noregi. Einn þátttakenda, Erling Róbert Eydal á rætur að rekja til Akureyrar

Tónlistarunnendur á Akureyri fá tækifæri annað kvöld, föstudagskvöldið 27. nóvember til að heyra í hinum margverðlaunaða málmblásarakvintett North Atlantic Brass leikur í Akureyrarkirkju kl. 20.

Kvintettinn hefur vakið athygli fyrir kraftmikinn flutning, fágað samspil og metnaðarfulla efnisskrá. Hópurinn, sem var stofnaður árið 2019 og hefur aðsetur í Kaupmannahöfn, skipa fimm ungir tónlistarmenn frá Íslandi, Danmörku og Noregi. Á síðustu árum hefur hann komið fram víðs vegar um Norðurlönd og hlotið alþjóðlega viðurkenningu, meðal annars með sigri í Ryan Anthony Memorial-keppninni í Los Angeles árið 2024.

Í hópnum eru Íslendingarnir Gunnar Kristinn Óskarsson trompetleikari, Erling Róbert Eydal hornleikari og Gunnar Helgason básúnuleikari, auk danska trompetleikarans Frederik Pehrsson og norska túbuleikarans August Schieldrop. Meðlimir sveitarinnar starfa með fremstu sinfóníuhljómsveitum Norðurlanda og hafa skapað sér sterka stöðu á alþjóðlegum vettvangi.

Fjölskyldurrætur til Akureyrar

Tónleikarnir hafa jafnframt sérstaka tengingu við Akureyri þar sem hornleikarinn Erling Róbert Eydal á sterkar fjölskyldurætur í bænum. Foreldrar hans eru Akureyringarnir Ásdís Eydal og Einar Erlingsson. Hann barnabarn hins kunna tónlistarmanns Ingimars Eydal. Má því segja að heimkoman verði honum nokkuð sérstök.

Á efnisskránni verður fjölbreytt tónlist sem höfðar til breiðs hóps áheyrenda. Þar má finna íslensk og norræn þjóðlög í nýjum útsetningum fyrir brasskvintett, klassísk verk, djassáhrif og jólatónlist sem setur svip á aðventuna sem fram undan er. Miðaverð 3.000 krónur.

Nýjast