Hafnasamlag Norðurlands hefur auglýst eftir tilboðum í byggingu nýs verkstæðis. Um er að ræða stálgrindarhús með milligólfi sem verður klætt samlokueiningum.
Verkið felur í sér fullnaðarfrágang hússins, en raflögn verður þó aðeins að hluta til innifalin í framkvæmdinni.
Samkvæmt útboðsgögnum er gert ráð fyrir að verktími hefjist við undirritun samnings og ljúki eigi síðar en 4. janúar 2028.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með deginum í dag.
Áhugasamir bjóðendur geta nálgast gögnin með því að sækja um þau í þjónustugátt Akureyrarbæjar. Gögnin verða aðgengileg sjálfvirkt í gáttinni að lokinni umsókn og verða ekki send sérstaklega til bjóðenda.