Fyrirhugað er að koma fyrir fjórum nýjum lóðum fyrir fjölbýlishús á suðurhluta verksmiðjusvæðisins á Gleráreyrum á Akureyri. Bæjarstjórn Akureyrar hefur auglýst tillögu að breytingu á deiliskipulagi svæðisins þar sem gert er ráð fyrir þessari uppbyggingu.
Heimilt verður að hafa verslunar- og þjónustustarfsemi á annarri hæð húsanna og bílageymslur á jarðhæð. Jafnframt eru lagðar til breytingar á afmörkun og legu stofnstígs, göngu- og hjólastígs, meðfram norður- og austurhluta lóðar Gleráreyra.
Við áframhaldandi vinnslu tillögunnar verða gerðar greiningar á skuggavarpi og vindafari.