Laugardaginn 21. nóvember verða ljósin tendruð á jólatrénu á Ráðhústorgi. Jólasveinar stíga á stokk, Barnakórar Akureyrarkirkju syngja og ævintýrapersónur úr veröld leikhússins bregða á leik. Bæjarstjórinn Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Erik Vilstrup Lorenzen, sendiherra Danmerkur á Íslandi, flytja stutt ávörp, og Salka Einarsdóttir, 4ra ára, kveikir ljósin á trénu.
Dagskráin hefst kl. 16 og sama dag verður Jólatorgið á Ráðhústorgi opnað en þar verður ýmis forvitnilegur varningur á boðstólum í 9 fallegum jólahúsum.
Jólatorgið verður opið frá kl. 15-18 á laugardaginn en síðan allar helgar fram að jólum frá kl. 14-18 á laugardögum og 14-17 á sunnudögum.
Dagskráin laugardaginn 21. desember:
Frá þessu segir á vef Akureyrarbæjar