Sérhæfir sig í geðhjúkrun og starfstengdum áföllum

Katrín Ösp Jónsdóttir
Katrín Ösp Jónsdóttir
Katrín Ösp Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur á geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri, hefur hlotið sérfræðileyfi í geðhjúkrun. Að baki liggur meistaranám í heilbrigðisvísindum með áherslu á geðheilbrigði, viðbótarnám í klínískri geðhjúkrun á meistarastigi og tveggja ára starfsþróun.
Áhugi Katrínar á samkenndarþreytu varð kveikjan að náminu. Hún vildi skilja betur hvað getur haft áhrif á líðan fólks sem vinnur við að hjálpa öðrum, meðal annars í heilbrigðis- og menntakerfinu.
 
„Þetta ferðalag hófst allt með einum áfanga í Háskólanum á Akureyri þar sem ég vildi kynna mér betur samkenndarþreytu,“ segir Katrín. Í sérhæfingunni lagði hún áherslu á starfstengd áföll, afleiðingar þeirra og hvernig megi fyrirbyggja þau og meðhöndla afleiðingar þeirra. „Ég vona innilega að þessi þekking og sérhæfing eigi eftir að nýtast bæði mér og þeim sem ég þjónusta í framtíðinni,“ segir hún.
 
Gísli Kort Kristófersson var aðalleiðbeinandi Katrínar í gegnum námið og starfsþróunina. Í leiðsagnarnefnd hennar sátu einnig Snæbjörn Ómar Guðjónsson, sérfræðingur í geðhjúkrun, og Sigrún Vilborg Heimisdóttir, sérfræðingur í klínískri sálfræði.
 
sak.is sagði frá

Nýjast