Blóðbankinn á Akureyri hefur flutt sig um set innan Glerártorgs og er nú til húsa á annarri hæð við norðurinngang verslunarmiðstöðvarinnar, þar sem gengið er inn á milli verslana Blush og Skor. Flutningurinn tengist stækkun Læknastofa Akureyrar, sem hafa um nokkurt skeið haft áform um að nýta það húsnæði sem Blóðbankinn áður hafði til umráða.
Nýja aðstaðan er rúmbetri en áður var og býður upp á tvö viðtalsherbergi auk sérstakrar aðstöðu fyrir fundi og símtöl við blóðgjafa. Hönnun rýmisins var í höndum Arkís og segir Hanna Vigdís Jóhannesdóttir hjá Blóðbankanum að vel hafi til tekist.
Opið hús og opnunarhátíð verður á nýja staðnum í dag, mánudaginn 16. nóvember frá kl. 12 til 15 þar sem gestum gefst kostur á að kynna sér nýju aðstöðuna yfir kaffi og köku.