„Það er mikilvægt er að huga að framtíð Brekkukots og tryggja að starfsemin hafi til framtíðar aðstöðu sem hentar bæði þeim sem nýta þjónustuna og starfsfólkinu,“ segir Guðbjörg Anna Björnsdóttir formaður velferðarráðs Akureyrarbæjar.
Fram hafa komið áhyggjur foreldra barna sem nýta þjónustu Brekkukots, sem fram fer í gamal Húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti. Katrín Árnadóttir er ein þeirra en hún vakti nýverið athygli á því í Vikublaðinu að gera þurfti ráðstafanir með heimilið áður en framkvæmdir á Tjaldsvæðareitnum hefjast. Því sé ekki ráð nema í tíma sé tekið. Guðbjörg Anna segir málið til skoðunar hjá Akureyrarbæ. Velferðarsvið hafi unnið þarfagreiningu en sú vinna sé mikilvægur grunnur að næstu skrefum og þeim ákvörðunum sem þarf að taka.
Gert ráð fyrir fjármunum til verkefnisins
„Í drögum að framkvæmdaáætlun bæjarins til næstu fjögurra ára er gert ráð fyrir fjármunum til skammtíma- og frístundaþjónustu, sem er bygging á nýju húsi fyrir skammtímavistun og byrjar undirbúningur að þeirri vinnu á næsta ári,“ segir hún. „Næsta skref er að taka fyrir minnisblað um mögulega og ákjósanlega staðsetningu fyrir starfsemina.“

Guðbjörg Anna Björnsdóttir formaður velferðarráðs Akureyrarbæjar
Mikilvægt að vanda vel til verka
Sú umfjöllun verður á næsta fundi skipulagsráðs. „Það er því óhætt að segja að málið sé komið í ákveðinn farveg, þótt enn eigi eftir að taka ákvarðanir um endanlega staðsetningu og útfærslu. Mér finnst mikilvægt að við vöndum vel til verka og horfum til framtíðar þegar kemur að þessari þjónustu. Markmiðið hlýtur að vera að skapa góða, örugga og hentuga aðstöðu sem mætir þörfum þeirra sem þjónustuna nýta, bæði nú og til lengri tíma.“