SAk hlýtur bronsdekkið fyrir orkuskipti í bílaflotanum

Fulltrúar rekstrardeildar með viðurkenninguna  Mynd á vef Sak
Fulltrúar rekstrardeildar með viðurkenninguna Mynd á vef Sak

Sjúkrahúsið á Akureyri hefur hlotið bronsdekkið, viðurkenningu fyrir árangur í orkuskiptum í bílaflota ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja. Hlutfall orkuskipta hjá SAk er nú 43,8% samkvæmt viðmiðum verkefnisins.

Í bílaflota sjúkrahússins eru átta bifreiðar: þrír rafmagnsbílar, einn tengiltvinnbíll og fjórir bílar sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. -

Umhverfis- og orkustofnun heldur utan um eftirfylgni orkuskipta í bílaflota ríkisins og veitir viðurkenningar eftir því hversu langt stofnanir og fyrirtæki hafa náð. Bronsdekk fæst við 30% hlutfall orkuskipta, silfurdekk við 60%, gulldekk við 90% og platínudekk þegar orkuskiptum er að fullu lokið.

Samkvæmt aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum er stefnt að því að ríkisstofnanir og ríkisfyrirtæki ljúki orkuskiptum í fólks- og sendibifreiðaflota sínum fyrir árslok 2029. Markmiðið nær einnig til aðkeyptrar samgönguþjónustu, svo sem leigu- og bílaleigubíla.

Bronsdekkið er ánægjuleg staðfesting á þeim árangri sem þegar hefur náðst hjá SAk og hvatning til áframhaldandi orkuskipta segir á vefsíðu Sjúkrahússins á Akureyri.

Nýjast