VMA fær Íslensku menntaverðlaunin í flokki iðn- og verkmennta

Að lokinni afhendingu Íslensku menntaverðlaunanna á Bessastöðum. Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir,…
Að lokinni afhendingu Íslensku menntaverðlaunanna á Bessastöðum. Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, er hér með Ástu F. Flosadóttur aðstoðarskólameistara VMA og Hauki Eiríkssyni brautarstjóra rafiðnbrautar VMA Mynd vma.is

Verkmenntaskólinn á Akureyri (rafdeild) er handhafi Íslensku menntaverðlaunanna í flokki iðn- og verkmennta fyrir sjálfbæra kennslustofu sem rafdeild skólans setti upp fyrr á þessu ári. Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, afhenti verðlaunin á Bessastöðum og Rúv sýndi frá athöfninni í kvöld. Við verðlaununum tóku fyrir hönd VMA Ásta F. Flosadóttir aðstoðarskólameistari og Haukur Eiríksson brautarstjóri rafiðngreina í VMA.

Til þess að afla rafmagns fyrir sjálfbæru kennslustofuna, sem er ein af kennslustofum rafdeildar á B-gangi skólans, var komið fyrir sólarsellum á þaki skólans og einnig lítilli vindrafstöð, í samstarfi við og með stuðningi frá Umhverfis- og orkustofnun.

Auk þessa verkefnis rafdeildar VMA voru tvö önnur verkefni tilnefnd til verðlaunanna í flokki iðn- og verkmennta; annars vegar Menntaskólinn á Ísafirði fyrir hönnun og smíði tímatökuhúss fyrir skíðasvæðið í Tungudal og hins vegar matreiðslumeistararnir Hermann Þór Marinósson, Hinrik Carl Ellertsson, Ragnar Wessman, Sigurður Daði Friðriksson og Ægir Friðriksson fyrir námsefnið Matreiðsla, heildstætt og vandað námsefni fyrir matreiðslunám á framhaldsskólastigi

Í umsögn Íslensku menntaverðlaunanna um sjálfbæru kennslustofuna í VMA segir:

VMA á skilið viðurkenningu fyrir framúrskarandi framlag til iðn- og verkmenntunar vegna frumkvöðlastarfs síns á sviði sjálfbærni, nýsköpunar og hagnýtrar kennslu. Með þróun sjálfbærrar kennslustofu, þar sem sólarsellur og vindorka sjá nemendum fyrir rafmagni til daglegra nota, hefur skólinn skapað lifandi lærdómssamfélag þar sem nemendur fá tækifæri til að tengja nám sitt við raunveruleg verkefni og samfélagsáskoranir samtímans. Verkefnið sýnir skýra framtíðarsýn um hvernig iðn- og verkmenntun getur verið leiðandi afl í loftslags- og orkumálum. Nemendur taka virkan þátt í þróun, rekstri og skilningi á tækninni og öðlast þar með dýrmæta verklega reynslu, ábyrgðartilfinningu og hæfni sem nýtist þeim í framtíðarstörfum. Verkefnið stuðlar jafnframt að jákvæðum skólabrag, auknu samstarfi við atvinnulíf og sterkari tengingu milli menntunar og samfélags. Framlag VMA er bæði frumlegt og áhrifamikið og hefur skólinn með þessu sýnt hvernig skapandi hugsun, fagmennska og samstarf geta leitt til raunverulegra menntaumbóta og orðið öðrum skólum fyrirmynd.

Handhafar Íslensku menntaverðlaunanna árið 2026 eru:
Framúrskarandi skólastarf – Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti
Framúrskarandi kennsla -
Þróunarverkefni -
Iðn- og verkmenntagreinar – Verkmenntaskólinn á Akureyri
Hvatningarverðlaun -

Þetta er í fjórða skiptið á sex árum sem Verkmenntaskólinn á Akureyri er tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna en í fyrsta skipti sem skólinn hlýtur þau.

Fyrri tilnefningar eru:

2021 – Hilmar Friðjónsson kennari í stærðfræði og viðskiptagreinum í VMA
2022 - Hársnyrtideild VMA
2023 – Haukur Eiríksson kennari í rafgreinum í VMA

Nýjast