Systurfélag World Class, Í toppformi ehf., hefur fest kaup á fasteigninni sem hýsir líkamsræktarstöð World Class að Strandgötu 14 á Akureyri. Kaupverðið nam 685 milljónum króna, frá þessu segir í frétt í Viðskiptablaðinu.
Strandgata 14 er 1.480 fermetrar að stærð. Skráð byggingarár eignarinnar er 1994. Fasteignamat 2026 nam 346 milljónum króna.
World Class opnaði sína fyrstu stöð utan Reykjavíkur í Slysavarnafélagshúsinu við Strandgötu í október 1997. Umrædd stöð var seld árið 2006. Í lok árs 2017 var greint frá því að World Class hefði festi kaup á heilsuræktarstöðvum Átaks á Akureyri, annars vegar við Skólastíg og hins vegar við Strandgötu.