Nýjar verklagsreglur um aðgerðir gegn loftmengun utandyra hafa verið lagðar fram til kynningar hjá Akureyrarbæ. Fulltrúar V-lista og S-lista fögnuðu vinnunni en lögðu áherslu á að reglunum verði fylgt eftir af festu.
„Staða loftgæða á Akureyri er áhyggjumál í ljósi óháðra mælinga en varnir gegn loftmengun eru mikilvægt lýðheilsumál, ekki síst þegar kemur að börnum og öðrum viðkvæmum hópum. Ekki má draga úr þeim aðgerðum sem þegar eru í gangi, heldur verði þær áfram efldar og þróaðar með það að markmiði að bæta loftgæði í bænum,“ segir í bókun fulltrúanna.
Hvatt er til þess að haldið verði áfram öflugri vöktun og fyrirbyggjandi aðgerðum, þar sem betri loftgæði skili sér í sparnaði og bættri lýðheilsu til lengri tíma.