Bókarkynning - Landhelgisgæsla Íslands 100 ára, 1926-2026

Nýlega kom út bókin Svipmyndir úr 100 ára sögu – Landhelgisgæsla Íslands 1926-2026. Höfundar hennar eru Guðjón Arngrímsson og Guðni Einarsson.

Landhelgisgæslan hefur nú í heila öld staðið vörð um öryggi og varnir lands og þjóðar. Hér á eftir verður gripið niður í bókina:

Herskip koma

Fyrst eftir útfærsluna í 50 sjómílur árið 1972 voru Bretar reyndar mjög hikandi að senda gæsluskip á Íslandsmið. Togvíraklippingar varðskipsmanna reyndu hins vegar svo á þolrifin í bresku togaraskipstjórunum að þeir kröfðust hvað eftir annað verndarskipa, að öðrum kosti sigldu þeir heim. Breska stjórnin lét að lokum undan kröfum útgerðarmanna og sendi þrjár freigátur inn fyrir 50 mílna mörkin 23. maí 1973. Freigáturnar voru: Lincoln, Plymouth og Cleopatra. Þá voru hér þrír dráttarbátar, Statesman, Englishman og Irishman, auk olíuskipsins Wave Chief og eftirlitsskipanna Miranda og Othello. Þyrlur voru um borð í freigátunum og flugu þær oft yfir miðin.

Ásiglingar

Koma herskipanna á miðin jók mjög á spennuna. Yfirmaður þeirra gaf togaraskipstjórunum þau fyrirmæli að halda skipum sínum í tveimur hópum svo vörn herskipanna kæmi að sem mestu gagni. Þetta fyrirkomulag gerði bresku togaraskipstjórunum erfitt fyrir þegar þeir drógu trollin hver í kringum annan. Herskipin breyttu samt litlu. Íslensku varðskipin dönsuðu á milli þeirra og héldu áfram að klippa á togvíra togaranna. Hinn 11. júlí 1973 skar til dæmis Ægir á togvíra breska togarans Boston Explorer FD 15 við nefið á bresku freigátunni Charybdis F 75 og dráttarbátnum Lloydsman. Gerðist þetta 20 mílum innan fiskveiðimarkanna norður af Horni.

Þrátt fyrir að varðskipin væru lítil í samanburði við freigáturnar og ganghraði þeirra miklu minni var þó ólíku saman að jafna. Á varðskipunum voru þaulvanir sjómenn sem þekktu allar aðstæður og vissu hvað gera þurfti. Á bresku skipunum voru menn sem þekktu mun verr íslenska staðhætti og veðraham. Ekki var þó komist hjá ásiglingum bresku herskipanna.

Töluverðar skemmdir urðu á Óðni 20. júní 1973 þegar dráttarbáturinn Lloydsman gerði tilraun til þess að kafsigla varðskipið norður af Vestfjörðum. Hinn 29. júlí sigldi breska freigátan Apollo á Ægi 38 sjómílur suðvestur af Grímsey. Gat kom á Ægi efst í ljósavélarrúmi og lak þar sjór inn. Þór varð fyrir ásiglingu freigátunnar Jaguar 31 sjómílu austsuðaustur af Glettinganesi hinn 11. september. Við áreksturinn kom bógur freigátunnar á aftanvert bátaþilfar Þórs stjórnborðsmegin og beygði rekkverk á bátaþilfari. Einnig kom dæld á um tveggja metra kafla á þyrluþilfari.

Samningar takast

Hinn 22. september varð síðan sá atburður á miðunum sem líklega átti stærstan þátt í því að koma Bretum að samningaborðinu. Þann dag sigldi breska freigátan Lincoln tvívegis á Ægi úti fyrir Norðfjarðarhorni. Í síðari árekstrinum urðu töluverðar skemmdir á varðskipinu, aðallega á rekkverki.

Landhelgisgæslan hafði boðið kvikmyndatökumönnum sjónvarpsins með í flug gæsluflugvélarinnar Sýrar. Myndirnar sýndu svo ekki varð um villst hvernig freigátan þverbraut alþjóðlegar siglingareglur. Myndirnar þóttu mikið fréttaefni og var dreift til tuga sjónvarpsstöðva víða um lönd. Með þeim náðu Íslendingar frumkvæði í áróðursstríðinu við Breta. Í kjölfarið kom meiri sáttatónn í bresk stjórnvöld og voru stöðug fundahöld með breskum og íslenskum ráðamönnum í október og nóvember. Hinn 3. október fóru dráttarbátar og freigátur út fyrir 50 mílna mörkin en Íslendingar höfðu gert það að skilyrði fyrir viðræðum.

Hinn 13. nóvember var gerður bráðabirgðasamningur til tveggja ára um takmarkaðar veiðar breskra togara á vissum svæðum milli 12 og 50 mílna markanna. Öll frystiskip og verksmiðjuskip voru útilokuð frá veiðum innan 50 mílnanna, sömuleiðis 30 aðrir togarar. Þá var gert ráð fyrir sérstökum bátaveiðisvæðum og friðunarsvæðum sem yrðu opin til skiptis. Þá voru ákvæði um að ef togaraskipstjórar brytu samkomulagið yrðu þeir að sæta afskiptum Landhelgisgæslunnar og yrðu strikaðir út af lista yfir veiðiskip. Ekki náðist samkomulag við Vestur-Þjóðverja þar sem þeir gátu ekki sætt sig við að Íslendingar leyfðu ekki veiðar verksmiðjutogara innan 50 mílna markanna. Í þorskastríðinu frá september 1972 og fram í nóvember 1973 var klippt aftan úr 82 landhelgisbrjótum.

39 sjómönnum bjargað af þremur skipum

Þyrlan TF-LIF sannaði getu sína svo um munaði í þremur stórum björgunum í mars árið 1997. Þá var 39 sjómönnum bjargað úr bráðum sjávarháska. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sýndi mikið þrek og áræðni í þessum erfiðu verkefnum.

Vikartindur strandar

Flutningaskipið Vikartindur varð vélarvana um sex sjómílur út af Þjórsárósum þann 5. mars 1997. Varðskipið Ægir fór til aðstoðar en skipstjóri Vikartinds dró það í lengstu lög að þiggja hjálp. Áhöfn TF-LIF var sett í viðbragðsstöðu á Reykjavíkurflugvelli klukkan 14:00 þennan dag.

Þyrlan var kölluð út kl. 19:57 en þá hafði Ægir fengið á sig brot og einn úr áhöfninni, Elías Örn Kristjánsson 30 ára bátsmann og kafara, tók út af skipinu við björgunaraðgerðirnar og fórst. Yfirstýrimaðurinn fótbrotnaði í látunum vegna sjógangsins.

Þegar þyrlan kom á vettvang var Vikartindur strandaður skammt frá landi. Undirbúningur björgunar áhafnarinnar hófst þegar. Sigmaðurinn seig niður á brúarvæng Vikartinds með tvær lykkjur og voru skipverjar hífðir upp tveir í einu. Alls bjargaði TF-LIF 19 skipbrotsmönnum af Vikartindi.

Víkartindur á strandstað Ljósmynd Auðunn F. Kristinsson

 

Dísarfell sekkur

Fjórum dögum síðar, laust fyrir klukkan fimm að morgni 9. mars 1997, kom útkall með mesta forgangi (Alfa) vegna flutningaskipsins Dísarfells sem var að sökkva um 100 sjómílur (185 km) suður af Hornafirði. Um borð var tólf manna áhöfn. Gengið var út frá því að skipverjar hefðu komist í björgunarbát.

TF-LIF hóf leit að skipbrotsmönnunum rétt upp úr klukkan sjö um morguninn þar sem síðast var vitað um Dísarfell. Leitað var eftir ákveðnu mynstri og voru 0,4 sjómílur (um 740 m) á milli leggja. Skömmu eftir að leit hófst sást olíuflekkur á sjónum og síðan skipið á hvolfi og var mikið brak og olía í kringum það. Tíu skipverjar fundust á floti í sjónum klæddir flotgöllum. Þeir náðu ekki að komast í björgunarbát en kræktu saman handleggjunum og flutu þannig í sjónum. Ellefti maðurinn fannst skammt frá.

Skipverjarnir, sem komust af þegar Dísarfellið sökk, kræktu saman handleggjunum og biðu í um tvær klukkustundir í sjónum eftir björgun á milli Íslands opg Færeyja í 8-10 metrqa aölduhæð. Ljósmynd Auðunn F. Kristinsson

Sigmaður sótti nokkra mannanna en hina var hægt að hífa tvo og tvo saman. Það óhapp varð meðan á aðgerðum stóð að slaki kom á spilvírinn og kræktist hann utan um ljóskastara utan á þyrlunni. Spilmaðurinn losaði upp á öryggisbelti sínu og gat fikrað sig utan á vélinni, með hjálp læknisins, og losað vírinn. Björgun gat því haldið áfram. Björgunin var gríðarlega erfið vegna sjólags og olíunnar í sjónum. Að sögn Morgunblaðsins var um tíu metra ölduhæð á slysstaðnum.

Þyrlan TF-LIF fann alla skipverjana tólf. Tíu þeirra komust lífs af og var bjargað um borð í þyrluna ásamt einum látnum. Sá tólfti, sem var látinn, var tekinn um borð í togarann Hegranes. Þeir sem fórust í sjóslysinu voru Óskar Guðjónsson (1937 – 1997) matsveinn og Páll Andrésson (1958 – 1997) yfirstýrimaður.

Þorsteinn GK strandar

Þriðja neyðarkallið á skömmum tíma kom klukkan 14:57 þann 10. mars. Netabáturinn Þorsteinn GK 16 varð þá vélarvana út af Krýsuvíkurbjargi með tíu manna áhöfn. Báðum akkerum bátsins var kastað um 0,6 sjómílur (1,1 km) frá bjarginu. Þegar þyrlan kom á vettvang hafði annað akkerið slitnað frá. Skipstjórinn átti von á skipi innan hálftíma til björgunar. Samkomulag varð um að hífa sex skipverja frá borði á meðan aðstæður væru góðar. Það var gert en örskömmu síðar slitnaði hitt akkerið frá, báturinn lagðist þvert og valt töluvert. Sigmaðurinn fór aftur um borð í bátinn og þá voru rétt um 300 faðmar (0,5 km) í bjargið. Síðustu fjórir skipverjarnir voru hífðir um borð í þyrluna, skipstjórinn síðastur. Rúmum 20 mínútum síðar var báturinn farinn að berjast utan í bjargið og eftir það hefði björgun mannanna verið ómöguleg.

Sæmdir afreksmerki hins íslenska lýðveldis

Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi tíu menn úr áhöfnum TF-LIF afreksmerki hins íslenska lýðveldis fyrir fyrrgreind björgunarafrek. Athöfnin fór fram að Bessastöðum 1. maí 1997. Þeir sem hlutu afreksmerkið voru:

Benóný Ásgrímsson flugstjóri, Páll Halldórsson flugstjóri, Hermann Sigurðsson flugmaður, Jakob Ólafsson flugmaður, Auðunn Kristinsson, stýrimaður og sigmaður, Hjálmar Jónsson, stýrimaður og sigmaður, Hilmar Þórarinsson, flugvirki og spilmaður, Ágúst Eyjólfsson, flugvirki og spilmaður, Friðrik Sigurbergsson læknir og Óskar Einarsson læknir.

Um leið var minning Elíasar Arnar heitins Kristjánssonar bátsmanns á Ægi heiðruð með því að sæma hann afreksmerkinu að honum látnum. Kristín Gísladóttir, ekkja Elíasar, tók við merkinu og var henni og börnum þeirra, Guðjóni Arnari Elíassyni og Kristjönu Dögg Elíasdóttur, falið merkið til varðveislu.

Áhöfn TF-LÍF sem bjargaði 19 skipverjum af Víkaratindi. Ljósmynd Kristinn Ingvarsson

Nýjast