Kvennalið Skautafélags Akureyrar tekur á móti Fjölni í Skautahöllinni á morgun, laugardaginn 7. nóvember, kl. 16.45. Aðalheiður Anna Ragnarsdóttir gekk aftur til liðs við SA á dögunum eftir dvöl í Svíþjóð og leikur sinn fyrsta leik með liðinu á tímabilinu.
SA hefur farið afar vel af stað og situr í efsta sæti Toppdeildarinnar eftir fjóra leiki. Liðið hefur unnið þrjá leiki og tapað einum eftir framlengingu. SA er því með tíu stig af tólf mögulegum, hefur skorað átján mörk og aðeins fengið tvö á sig. Óhætt er að segja að SA-konur hafi fylgt sigrinum í Atlantic Cup í september vel eftir með öflugri byrjun á tímabilinu.
Í síðasta leik sínum vann SA SR 4–0 í Reykjavík. Nokkrum dögum síðar hafði Fjölnir betur gegn SR, 3–2, í sögulegum leik og nældi sér þar með í sín fyrstu stig á tímabilinu. Úrslitin réðust ekki fyrr en í vítakeppni þar sem þurfti hvorki meira né minna en 42 vítaskot til að knýja fram úrslit.
Vítakeppnin er sú lengsta sem vitað er um í íslensku íshokkíi. Markvörður Fjölnis, Cassandra Goyette, setti Íslandsmet í sínum fyrsta leik með félaginu þegar hún varði 20 vítaskot.