Nýr samningur um ferðamál í Hrísey

Hrísey
Hrísey

Akureyrarbær og Ferðamálafélag Hríseyjar hafa undirritað nýjan samning um framlög til verkefna á sviði ferðamála í Hrísey fyrir árin 2026–2029. Markmiðið er að efla eyjuna sem eftirsóknarverðan áfangastað allt árið um kring með samvinnu heimamanna og atvinnu-, menningar- og markaðsteymis bæjarins.

Samkvæmt samningnum sér atvinnu-, menningar- og markaðsteymi Akureyrarbæjar um markaðssetningu Hríseyjar á landsvísu, en Ferðamálafélagið annast framkvæmd og þróun ferðaþjónustu á svæðinu. Félagið heldur einnig úti upplýsingavefnum www.hrisey.is.

Ferðamálafélagið hefur umsjón með nokkrum helstu verkefnum í eyjunni, þar á meðal er Minjasafnið Holt, Hús Hákarla Jörundar, þrif á almenningssalerum og eftirlit með fuglaskoðunarhúsi. Þá sé félagið einnig um Hríseyjarhátíð sem er árleg þriggja daga hátíð haldin í júlí.

Framlag Akureyrarbæjar vegna rekstrarverkefna hækkar á samningstímanum og verður 1,2 milljónir króna árið 2026, 1,3 milljónir árið 2027, 1,35 milljónir árið 2028 og 1,4 milljónir króna árið 2029. Þá greiðir bærinn 450 þúsund króna árlegt framlag vegna Hríseyjarhátíðar.

Nýjast