Hrísey Varp hjá rjúpu með mesta móti á liðnu vori

Þorsteinn Þorsteinsson   Myndir ÞÞ
Þorsteinn Þorsteinsson Myndir ÞÞ

Varp hjá rjúpu var með mesta móti á liðnu vori í Hrísey og segir Þorsteinn Þorsteinsson sem lengi hefur fylgst með viðgangi rjúpnastofnsins í eynni að það hafi verið svipað og árið 1966, fyrir hálfri öld.

„Á þeim tíma urpu nær 300 rjúpur í eynni. Vorið þá var gott og enginn ungadauði. . Margir karranna voru með 2-3 kvenfugla og ef meðaltal eggja í hreiðri er nær 10 egg, sést hversu mikill fjöldi unga, fer til fjalla frá Hrísey. Hrísey er mikil útungunarstöð rjúpna,“ segir hann.

Hændi að sér rjúpur

Ragnar Víkingsson, (1936-2024), sjómaður í Hrísey, fuglaáhugamaður og náttúruunnandi. Hann hændi að sér rjúpur sem komu í talsverðum mæli inn í garð hans og höfðu vetursetu í eynni.

Þegar hann birtist með rauðu skálina og stráði fóðri í kringum sig komu rjúpurnar flögrandi víðs vegar að. Þeir eru ófáir sekkirnir sem hann bar af maískurli í vini sína. „Það var stórkostlegt að sjá þennan höfðingja í miðjum rjúpnahópnum og þær alls óhræddar að tína í sig kornið.

Ragnar Víkingsson, (1936-2024), sjómaður í Hrísey, fuglaáhugamaður og náttúruunnandi

Blessuð sé minning þessa góða fuglavinar sem Raggi Víkings var,“ segir Þorsteinn.

 

Ólafur Karl Nielsen fuglafræðingur með nokkrum börnum úr Hrísey en hann stundaði m.a. merkingar á rjúpu þar. Myndir: Þorsteinn Þorsteinsson.

Nýjast