Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í gær óskaði Þórhallur Jónsson Akureyrarlistanum eftir umræðu um fyrirhugaðar breytingar á Loftbrú sem boðaðar hafa verið. Eftirfarandi ályktun sem Þórhallur lagði fram var samþykkt samhljóða.
Bæjarstjórn Akureyrar mótmælir fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú og lýsir yfir áhyggjum af þeim áhrifum sem þær kunna að hafa fyrir íbúa landsbyggðarinnar. Loftbrú er mikilvægt byggðarjöfnunartæki sem tryggir íbúum utan höfuðborgarsvæðisins betra aðgengi að nauðsynlegri þjónustu, atvinnu, menningu, námi og fjölskyldutengslum.
Breyting frá hlutfallslegum 40% afslætti yfir í fasta krónutölu felur í sér skerðingu á stuðningi, sérstaklega þegar flugfargjöld eru há og bóka þarf flug með skömmum fyrirvara. Með því er aukinn kostnaður færður yfir á íbúa landsbyggðarinnar og jafnræði til búsetu skert.
Bæjarstjórn Akureyrar skorar á stjórnvöld að endurskoða fyrirhugaðar breytingar, tryggja raunverulegt samráð við sveitarfélög og íbúa landsbyggðarinnar og standa vörð um Loftbrú sem mikilvægt tæki til byggðarjöfnunar.
Það á ekki að vera dýrara að búa á landsbyggðinni vegna þess að nauðsynleg þjónusta er staðsett á höfuðborgarsvæðinu.