Kvennaknattspyrna KA endurnýjar ekki samstarfssamning við Þór

Kvennaknattspyrna  KA endurnýjar ekki samstarfssamning við Þór
Kvennaknattspyrna KA endurnýjar ekki samstarfssamning við Þór

Eftirfarandi tilkynning var send til fjölmiðla frá kvennaráði knattspyrnudeildar KA rétt í þessu

KA og Þór hafa um árabil staðið saman að rekstri kvennaknattspyrnu á Akureyri í 3. flokki, 2. flokki og meistaraflokki kvenna.

Samstarfssamningur félaganna rann sitt skeið á enda 15. október sl. og hefur KA tekið þá ákvörðun að endurnýja hann ekki.

Að baki ákvörðuninni liggur sú framtíðarsýn KA að kvennaknattspyrna verði hornsteinn í starfi félagsins og að stúlkur sem hefja æfingar hjá KA fái tækifæri til að leika undir merkjum félagsins alla leið upp í meistaraflokk.

Frá og með næsta tímabili mun KA tefla fram eigin liðum í 3. flokki, 2. flokki og meistaraflokki kvenna. Félagið lítur björtum augum til þessa nýja kafla og hlakkar til að byggja upp öflugt, faglegt og skemmtilegt kvennastarf sem KA-fólk getur verið stolt af.

KA þakkar Þór fyrir gott og gifturíkt samstarf í gegnum tíðina og óskar félaginu alls hins besta.

Fyrir hönd kvennaráðs knattspyrnudeildar KA
Ásgeir Örn Blöndal

Nýjast